Kainsmerki og kvendjöflar

Páskana 1979 horfði ég smástund á hina fornu kvikmynd Þrúgur reiðinnar eftir sögu Steinbecks og þótti hún svo ömurleg að það sat í mér árum saman, en ég man ekki eftir að hafa reynt að horfa á sjónvarpsþættina Austan Eden þegar ég var 12 ára, og hef sannarlega engar minningar um James Dean að leika Aron Trask í Sjónvarpinu þegar ég var sex ára og fór í háttinn fyrir átta. Ég held að ég hafi ekki lesið aðrar skáldsögur John Steinbeck en Kátir voru karlar sem á frummálinu heitir Tortilla Flat (ég held að Karl Ísfeld hafi fundið upp á flestum þessum smellnu titlum), hugsanlega líka Ægisgötu (Cannery Row) og Of Mice and Men (hef í öllu falli séð þá sögu á hvíta tjaldinu og í leikhúsi) en sannarlega hvorki Þrúgur reiðinnar eða Austan Eden. Þess vegna horfði ég auðvitað á nýju Netflix-sjónvarpsþáttaröðina leikstýrt af leikkonunni Zoe Kazan — sonardóttur sjálfs Elia Kazan sem leikstýrði myndinni með James Dean á sínum tíma — sem var frumsýnd núna í október. Þar segir frá tveimur kynslóðum bræðra, fyrst Adam og Charles og síðan Aron og Caleb, og eru nöfnin býsna augljóslega sótt í Biblíusöguna um fyrstu bræðurna Kain og Abel sem annar drap hinn út af afbrýðisemi, sannarlega óefnilegt heilagt upphaf systkinasambanda. Þessi saga kynnir okkur líka fyrir minninu um pabbann sem gerir purkunarlaust upp á milli barna sinna og það er ekki laust við að við sem erum nýbúin að lesa Gísla sögu enn eina ferðina og erum því þrautreynd í flóknum bræðrasamböndum séum þannig afar tilbúin fyrir Austan Eden á Neftlix.

Fyrsti þátturinn snýst um misheppnað uppeldi patríarksins Cyrus Trask sem er dæmigerður harðstjóri sem hefur gert fjögurra mánaða veru sína í hernum í þrælastríðinu að þungamiðju ævisögu sinnar en reynist vera grunsamlega ríkur loddari. Hann heldur upp á hinn viðkvæma og blíða son sinn Adam og er æstur í að gera hann að harðsoðnum hermanni en heldur hins vegar frakkari syninum Charles heima við bústörf. Charles er talsvert áhugaverðari persóna líkt og hinn upphaflega bróðurmorðingi Kain. Hann bæði elskar bróður sinn heitt og hatar hann, er vinnusamur líkt og Gísli Súrsson og álíka búsæll og Hrafnkell Freysgoði í sinni annarri tilvist. Þegar Adam snýr heim eftir langan aldur er fyrsta hugmynd heimalningsins Charles að þeir geti núna náð saman sem bræður á hóruhúsi svæðisins og hann upplýsir bróður sinn einnig um að þeir hafi erft formúu. Charles er leikinn af Mike Faist sem er áhugaverður í öllum hlutverkum, meðal annars vegna þess að hann er alls ekki dæmigerður í fögru útliti en hefur afar sterka nærveru og síðan eru Kaintýpurnar vitaskuld mun áhugaverðari en Abeltýpurnar. Það dofnar heldur yfir þættinum þegar Faist er fjarri.

Ekki eru bræðurnir ólíku fyrr sameinaðir en þeir fá óvæntan gest sem hefur verið misþyrmt af ókunnum aðila og nefnist Cathy Ames, leikin af Florence Pugh. Pugh leikur vel að vanda en þessi persóna er svo rækilega drifin af fornu en síkviku kvenhatri að ég átti bágt með hana, jafnvel þótt Steinbeck líkt og Njáluhöfundur veiti okkur færi á að lesa gegn kvenhatrinu sem Zoe Kazan nýtir sér óneitanlega. Cathy sem síðar kallar sig Kate er sambland hinnar föllnu Evu og höggormsins í Paradís. Hún hafði meðal annars drifið saklausan latínukennara til sjálfsmorðs, maðurinn logandi af girnd til hennar sem augljóslega er henni að kenna. Árið 2026 getur þetta ekki verið svo einfalt en sannarlega kemst Cathy fljótlega upp á milli bræðra. Adam hrífst af henni en hún er fljót að leggjast með Charles líka enda hann ólíkt kynþokkafyllri í þessari gerð sögunnar. Síðar skýtur hún mann sinn, hafnar börnum sínum og flytur á hinn náttúrulega heimavöll glyðrunnar, hóruhúsið þar sem hún nær að lokum öllum völdun af fyrri mellumömmu (Martha Plimpton kemur sterk inn).

Í síðari hluta beinist athyglin að næstu kynslóð, tvíburunum gerólíku Caleb og Aron sem fengu mesta athygli í kvikmynd Elia Kazan frá 1955, einu stórmynd James Dean sem var frumsýnd að honum lifanda. Adam endurtekur mistök föðurins (og Guðs föður) með því að halda upp á góða soninn Aron og veldur það mikilli afbrýðissemi Cal, líkt og hjá Kain forðum. Stráksi reynir stöðugt að þóknast honum en ber ekkert skynbragð á hvernig og hefnir sín að lokum með því að sýna Aron móðurina illu í hóruhúsinu. Hebreska hugtakið תִּמְשָׁל er lykilatriði í skáldsögu Steinbecks og lýtur að möguleikum Caleb á að ráða eigin örlögum og fjölskyldunni og í stærra samhenginu mannkynsins að komast hjá erfðasyndinni en staða hennar er eðlilega sterk hjá hóruungunum Caleb og Aron. Caleb leitar jafnvel uppi móður sína, holdgerving erfðasyndarinnar, í örvæntingarfullri leit sinni að manngæskunni. Í Caleb reyndi Steinbeck að skapa persónu sem var bæði full af löngunum, þrám og jafnvel ágirni en samt örlát og að lokum fær um תמשל.

Í þessari gerð fær kínverski þjónninn Lee óvenju mikið rými enda Bandaríkjamenn nýbúnir að uppgötva að hinir 7 milljarðarnir af 8 milljörðum jarðarbúa séu til og eru að vonum fullir aðdáunar á eigin víðsýni. Minna verður úr Hamiltonfjölskyldunni sem fékk talsvert rými í bókinni. Lee er hálfgerður uppeldisfaðir tvíburanna og er í senn hógvær og réttsýnn. Það má velta fyrir sér hvort hann sé á mörkum þess að vera „Magical Asian“ en Hon Lee leikur hann af miklum gravitas sem mann sem leynir á sér en reynist vera siðferðislegt akkeri ekki vegna einfaldrar manngæsku heldur vegna skýrrar sýnar á mannlífið og flækjur þess.

Þar sem ég er tiltölulega nýbúinn að lesa Gísla sögu var ég eðlilega hugsi yfir boðskap Austan Eden og ekki síður höfuðrits kristninnar um systkinasambönd. Hvað má lesa í það að systkini voru ekki fyrr komin í heimin en annað drap hitt? Eitthvað svipað og það sem Völuspá kallar að bræður muni berjast og að bönum verða? Steinbeck var raunar vel lesinn í miðöldum en engar sögur fara svo að ég viti um lestur hans á eddukvæðum eða Íslendingasögum. Líkindin eru frekar þau að ýmis umhugsunarefni mannsins eru sígild og ganga aftur á ýmsum skeiðum sögunnar og í margvíslegum bókmenntagreinum og ekki síst það flókna en afar nána samband sem iðulega ríkir milli systkina sem eyða ævinni saman og geta verið sterkasta sambandið en iðulega kemur þó eitthvað í veg fyrir þau farsælu endalok.

Next
Next

Kjafturinn ákaflega mikill