Lífsins öldur

Í upphafi 20. aldar komust ýmsir módernistar að því að hlutverk þeirra sem skálda væri ekki að flytja fólki áhugaverðar eða jafnvel lærdómsríkar sögur (einkum úr fortíðinni) heldur að reyna að nota texta til að segja eitthvað um lífið, veruleikann, náttúruna og samskipti fólks. Eitthvað á þessa leið hugsuðu Joyce og Proust og eins jafnaldri þeirra Viriginia Woolf en hennar tilraun var þó kannski ívið lágstemmdari. The Waves (1931) er sjöunda skáldsaga Woolf af níu og frá og með Mrs Dalloway (1925) urðu þær æ óhefðbundnari enda líktu margir Bylgjunum við ljóð þó að sjálfum hafi ég fundist vera að lesa módernískt leikverk þar sem sex manneskjur (eða kannski sjö) eru bæði fulltrúar manneskjunnar og mikilvægs fólks úr lífi Virginiu sjálfrar. Þar er ferðast um lífið frá bernsku til þess miðaldurs þar sem ég er sjálfur staddur nú og persónurnar eru ekki aðeins að tala hver við aðra heldur ekki síður við lesandann eða sjálfan sig. Einhvern sá ég á netinu líkja sögunni við rísóm og fannst það hljóma mjög gáfulega.

Er Virginia Woolf snjöll í beitingu málsins? Sannarlega en samt fannst mér The Waves ekki ná jafn vel til mín og sumar aðrar bækur hennar. Kannski vegna þess að ég skil ekki alveg tilganginn með bókinni og þar með er ég þó ekki að segja að allar bækur þurfi að hafa skýran tilgang. En í þessu tilviki hélt textinn mér fyrir utan. Ég hafði sterklega á tilfinningunni að söguraddirnar sex væru öðrum skiljanlegri en mér og í sögu þeirra fælist almennt gildi sem mér yfirsæist. Sannarlega var ég ekki að reyna að lesa mig inn í bókina með hinni ævisögulegu rannsóknaraðferð en sá samt að það hafa aðrir gert. Óneitanlega eru raddirnar sex fólk frá sínum tíma , fædd um 1880 í tiltekna stétt í Bretlandi og þar með kannski sérstakari en höfundurinn vill að þær séu. Ræður þeirra eru ekki þreytandi en mér fannst vissulega erfitt að finna lítinn hvata til að lesa áfram. Ég fékk sterklega á tilfinninguna að utansviðspersónan Percival væri lykillinn að verkinu en fann svo enga skrá til að stinga þeim lykli í.

Mér skilst að Virigina hafi sjálf verið hæstánægð með bókina og takt hennar. Hún hafi með henni náð markmiði sínu að yfirgefa sögufléttuna og voka milli ljóðsins og leikritsins. Þetta er áhugaverð tilraun sem ég átta mig á að er mikilvæg þó að hún hafi látið mig ósnortinn enda kannski ekki ætlan hennar að snerta einn né neinn.

Next
Next

Kainsmerki og kvendjöflar