Kainsmerkið

Þegar ég var sjö ára trúði ég því staðfastlega að bílar morðingja þekktust á þremur blóðblettum á stuðaranum en man ekki hver laug því að mér. Fólk skemmti sér mjög við að blekkja börn í þá daga. Pabbi heitinn mun þó hafa þverneitað að taka þátt í grikk tveggja frænda sinna sem báðu hann sjö ára sakleysislegan ljóshærðan dreng að benda á gæslumanninn í apabúrinu í tívolí í Vatnsmýrinni og spyrja: Er þetta einn af öpunum? Þeir frændur voru miklir grallaraspóar. Á þessum aldri var okkur líka sögð sagan af bróðurmorðingjanum Kain sem var brennimerktur eftir morðið, að sögn Biblíunnar honum til varnar en seinni tíma menn túlkuðu það sem refsingu og að allir morðingjar bæru Kainsmerkið. Lítil samstaða var um útlit þess en sumir töldu að Kain hefðu vaxið horn eftir morðið líkt og djöflinum sjálfum sem er jafnvel enn meira krassandi en blóðblettirnir þrír.

Miðalda- og endurreisnarmálarar hrifust mjög af fyrsta voðaverkinu og máluðu Abel yfirleitt liggjandi á jörðinni og allsnakinn en Kain (stundum í fötum til aðgreiningar) standandi yfir honum mundandi frumstætt morðvopn. Iðulega er Kain dekkri og mun eldri en Abel sem oftast er túlkaður af fölum unglingi. Málarar skiptast í tvo hópa varðandi það hvort Abel er skelfingu lostinn eða yfirvegaður eða jafnvel að reyna að flýja eins og að neðan. Biblían er stuttaralegur og þurr texti og galdur hennar felst ekki síst í listræna frelsinu sem hún veitti myndlistarmönnum þegar vegur kirkjunnar var hvað mestur.

Sagan fjallar vitaskuld einkum um bróðurmorðingjann Kain. Í íslensku biblíuendursögninni Stjórn frá 13. öld segir: „Enn af þi at Kayn uar aufundsiukr ok illskeptr. þa aufundadi hann miok giptu ok giętzku sins brodur. ok fyrir þa sauk at hans fornir uaru medr agirnd byriadar ok offradar likadu þær eigi gudi“. Hinn saklausi Abel leggur fyrst og fremst til blóðið sem síðan hrópar á Guð almáttugan af jörðinni. Áhugi sumra málara á honum er þó augljós og stundum verður hann meira áberandi en bróðurbaninn Kain, t.d. þegar fórnarlambið snýr fram en Kain er einkum baksvipurinn.

Stöku málari beinir sjónum sínum svo ekki að sjálfu víginu heldur því þegar Kain ber myrtan bróður sinn af vettvangi. Myndin að neðan eftir 19. aldar málarann Faliguières er ein sú mest sláandi vegna lýsingarinnar þar sem hinn dökki Kain myndar skarpa andstæðu við náfölt og horað líkið af eftirlætisbarninu Abel. Kannski er þá hið óevrópska útlit morðingjans hið eina sanna Kainsmerki?

Next
Next

Abyssus abyssum invocat