Horfin sálarró Súrssonar
Þetta haust hef ég verið að kenna Gísla sögu Súrssonar sem ég sjálfur lærði í 9. bekk Langholtsskóla á sínum tíma. Kennarinn minn (Helga Jónasdóttir) var frábær og eitilhörð en kennslan gekk samt aðallega út á að leggja söguna á minnið og þar á meðal helstu fleygu setningarnar („hver sagði hvað við hvern, og hver dó skömmu síðar”). Ekki var um að ræða mikla umræðu um merkingu sögunnar, helstu andstæður eða heimspekilegu forsendur. Þeim kynntist ég fyrst í háskóla og ekki í tímum því að vitaskuld var ekkert námskeið þar með öllum Íslendingasögum. Stundum vill gleymast að nám snýst aðallega um að lesa og ég lærði um Gísla sögu með því að lesa allar greinarnar um hana á ýmsum tungumálum. Meðal þess sem hefur blasað við fræðimönnum seinustu sex áratugi er að sagan veitir lesendum eða áheyrendum forsendur til að draga hetjuskap Gísla Súrssonar og siðferðislega yfirburði í efa. Án þess væri sagan ekki nándar væri jafn góð.
Nýverið sendi ég frá mér grein um norska forleikinn í Gísla sögu ásamt Christopher Crocker sem var aðalhöfundur greinarinnar („What Happens in Norway Does Not Stay in Norway: The Prelude to Gísla saga,“ Saga-Book 49 (2025), 5–26) en sá þáttur er eitt af mörgum dæmum um sterka höfundarvitund hennar. Annað mikilvægt einkenni sögunnar eru allar vísurnar sem eignaðar eru Gísla en eru þó augljóslega ekki frá 10. öld og þar kemur fram sálarástand hetjunnar sem afhjúpar andstæður sem henni gengur vel að breiða yfir í vöku. Í draumum sínum er Gísli ofsóttur af illri draumkonu sem virðist vera hálfgerð samviska hans og lætur hann ekki í friði jafnvel þótt hann sé á yfirborðinu fullur sjálfsöryggi og þótta. Sálarró hans eru horfin löngu áður en hann lætur lífið.
Eitt af því sem ég bendi nemendum mínum á er að það eru í raun engin sterk rök fyrir því að nein núverandi gerð Gísla sögu sé samin fyrir 1350 og jafnvel má líta á það í samhengi við það að elsta varðveitta gerð sögunnar leynir því hver vegur Véstein sem er þó alls ekki leyndarmál t.d. í Eyrbyggju eða Landnámu hundrað árum fyrr og ekki heldur þegar yngri gerðin er sett saman allnokkru síðar. Þannig er það ekki Gísla saga sjálf sem er „elsta íslenska glæpasagan“ heldur ein gerð hennar og ástæðan fyrir því að ekki er sagt frá því hver vegur Véstein að höfundur vill beinlínis að hefnd Gísla á Þorgrimi orki tvímælis. Þetta eru nokkur af fjölmörgum atriðum sem hafa undanfarið verið til umræðu í námskeiði mínu um Gísla sögu á vegum Endurmenntunar Háskólans og þeir eru vonandi sáttir við sem sækja.