Kjafturinn ákaflega mikill
Í blaðinu Þjóðólfi í ritstjórn Matthíasar Jochumssonar skálds birtist í júlí 1876 frétt sem nefndist „Óvenjulegt dýr“ og hljóðar svo: Á Katanesi á Hvalfjarðarströnd varð í hitt eð fyrra sumar vart við dýr nokkurt (skrímsli) við tjörn eina allstóra, sem þar er stekkjarveg upp frá bænum. Voru það helzt unglingar, sem þá sáu dýr þetta. Þótti þeim það koma upp úr tjörninni og hverfa í hana aptur; sögðu þeir, að það væri að stærð við hund í stærra lagi, en hvorki lýstu þeir, sem sáu, dýri þessu þá nákvæmlegar, enda tortryggðu menn sögusögnina. Í fyrra sumar þóttust menn aptur ekki ósjaldan sjá sömu skepnu á sömu stöðvum; sýndist hún þá hafa vaxið síðan árið áður, og hafa hjer um bil vetrungsstærð; en síðan í vor hafa mjög margir menn, eldri sem ýngri, sjeð það. Er því nú lýst á þessa leið:
Það er að stærð á við þrevetran nautgrlp, aflangt nokkuð með digran haus og hala afarmikinn, á að gizka þriggja álna langan; það er hvítleitt á búkinn, en hausinn rauður; sannorður maður kveðst hafa verið á reið skammt frá nefndrl tjörn, og hafi þá sjeð, hvar dýr þetta lá í laut einni; það leit ekki við honum; sá hann að það hafði sex stórar klær á hverjum fæti eða löpp, en fæturnir stuttir; kjapturinn ákaflega mikill, og framtennur fjórar í, miklar og hvassar; eyru hefur það löng og lafandi, en þó hafa menn sjeð það reisa þau upp; hvorki hafa menn sjeð hár nje hreistur á húð þess, heldur því líkast sem hausinn væri húðlaus og sjái í rauða kviku; þeir, sem hafa sjeð það í tjörninni, segja að það syndi afarfljótt. Dýrið virðist optlega reika frá tjörninni, en mjög óreglulega, sjezt stundum ekki dögum saman. það hefur ósjaldan elt bæði menn, jafnvel ríðandi, og sauði, — ekki kýr eða hesta, — enda hafa horfið nokkrar kindur, er menn hyggja, að það hafi tekið; hafa menn sjeð það einangra kind frá fjárhóp, en ekki virðist það afar-frátt á landi, töluvert seinna en meðal-hestur.
Á dögunum lágu þrír menn með skotvopnum — einn þeirra Sverrir steinhóggvari Runólfsson — við tjörnina, en urðu þá ekki neins varir, og hurfu frá við svo búið, og hafði einn þeirra sjeð dýrið áður. En hinn sama dag og menn þessir fóru frá, sást það, og elti þá smalapilt frá Katanesi heim undir bæ, og hvarf þar aptur. Eptir þessari lýsingu manna á þessari skepnu, virðist hún að því leiti afar-merkileg, sem hún er töluvert frábrugðin öllum þeim láðs- og lagardýrum, sem menn með vissu þekkja, og væri í mesta máta æskilegt, að heppnast mætti að veiða það lifandi.
Ég ætla ekki að ræða hér hugmyndir mínar um söngleik um Katanesdýrið (sbr. fyrri grein mína um Elagabalus) eða dýrið frekar yfirleitt en læt þess getið að hin kunna samtímamynd af dýrinu er iðulega eignuð Benedikt Gröndal en Sigfús Eymundsson bóksali og ljósmyndari eignaði sér hana í Ísafold árið 1876: „Af skrímslinu fræga í tjörninni hjá Katanesi á Hvalfjarðarströnd, sem Þjóðólfur var að lýsa fyrir skemmstu, hefi jeg búiið til uppdrátt eptir lýsingu þeirra, er sjeð þykjast hafa, og síðan tekið Ijósmynd af uppdrættinum. Ljósmyndin hefir tekizt ágætlega, og hef jeg nú nóg af henni til sölu, fyrir 50 aura.“ Fleiri reyndu að hagnast á Katanesdýrinu eins og fram kemur í Ísafold árið 1878: Þau merkilegustu dýr í heimi eru eflaust þessi: skáldskapargæðingarnir og flughestarnir; [hippogryphos og Pegasus], gátudýrið egiptska [Sfinx], ormurinn í Lagarfljóti, og — Katanesdýrið. Þetta síðast nefnda er það einasta af tjeðum skrímslum, sem málaferli hafa orsakast út af. Vjer munum ekki til þess, að reynt hafi verið til, að bana hinum; en duglegasta skyttan í Borgarfjarðarsýslu var fengin til að skjóta Katanesdýrið; hann skaut það ekki, en það kostaði 96 krónur að skjóta það ekki; hvað mundi hafa kostað að skjóta það? Hlutaðeigandi hreppsnefnd þótti þetta dýrt; undirdómaranum þótti það sanngjarnt; en yfirdómnum þótti það „ómerkt“. Vonandi er að málið komi fyrir hæstarjett.