Snilldarverk og Bechdelprófið

Þegar Loga Geimgengli var sagt að hann ætti systur og stráksi gat strax upp á Lilju prinsessu varð enginn áhorfandi Stjörnustríðs hissa þar sem enginn annar lifandi kvenmaður var beinlínis persóna í Stjörnustríðsmyndunum (Mon Mothma birtist skömmu síðar) þannig að ekki var um erfiða ráðgátu að ræða. Allir áhugamenn um kvikmynda- og bókmenntarannsóknir þekkja Bechdelprófið svokallaða sem var upphaflega sett fram sem gott grín í teiknimyndasögu fremur en sem vísindakenning en hefur þó skipt kynjafræðin talsverðu máli æ síðan.

Fimmtíu árum eftir frumsýningu Stjörnustríðs fer ekki hjá því að maður taki eftir því þegar aðeins ein kona kemur fyrir í bíómynd eða að hún þurfi vitaskuld að vera í sambandi við einn af fjölmörgum karlmönnum sögunnar. Þetta á við um upphaflegu þrjár Stjörnustríðsmyndirnar og eiginlega um næstu þrjár líka þó að tuttugu ár væru liðin og eins um Indiana Jones myndirnar og flestar afþreyingarmyndir fyrir 2000 yfirleitt þar sem næstum hver einasta kona er mamma, eiginkona eða ástkona. Þetta var vitaskuld á árunum sem bókmenntaprófessorar gátu skrifað tímaritsgreinar um konur í bókum og flokkað þær í gamlar, miðaldra og ungar.

Þó að ég sé einn örfárra sem setti fjórar kvikmyndir eftir konur á topp tíu listann sinn fyrr í ár er fjarri mér að hreykja mér af því. Þar varð mér til hjálpar að hrífast almennt af myndum um fólk að tala saman sem kvenkyns leikstjórar fá frekar að gera en dýrar hasarmyndir. Aftur á móti verð ég að játa að sumar eftirlætismyndir mínar standast Bechdelprófið alls ekki og ég álasa þeim reyndar alls ekki fyrir það. Þar á meðal eru Twelve Angry Men (1957) og Lord of the Flies (1963) en ekkert kvenkyns sést í þeim myndum (ekki einu sinni rúta). Enn ein er Stalag 17 þar sem konur sjást þó en þeirra hlutverk er það eitt að karlar góna á þær sem eiginlega er verra en ekki neitt (en svo held ég líka upp á Picnic at Hanging Rock og Women Talking þar sem sannarlega skortir ekki kvenpersónur). Vandinn við eldri kvikmyndir er ekki aðeins sá að þær væru fáar konur en enn frekar sá að þær voru oftast skilgreindir fullkomlega út frá hlutverki sínu fyrir karlveldið. Ef konum hefði verið bætt við hefði það iðulega merkt að kynferðisleg áreitni eða jafnvel nauðgun væri nú óumflýjanleg.

Góð mynd þarf sem sagt að mínu mati alls ekki að standast Bechdelprófið ef hún gerist t.d. í fangelsi eða strákaskóla þó að það sé að mínu mati úrelt að forðast konur til þess eins að forðast hið kynferðislega. Engin ástæða er heldur til þess að mynd sem gerist í einsleitu samfélagi hafi alltaf leikara af ýmsum kynþáttum aðeins sem yfirbót fyrir forn bandarísk mannréttindabrot. Hins vegar er sjálfsögð og eðlileg krafa að afþreyingarefni sé með fjölbreytt persónuúrval og engin ástæða til að amast yfir því á varasömum sögulegum forsendum. Þannig er það eiginlega frekar ömurlegt að hluti Stjörnustríðsaðdáenda hafi farið að kvarta og kveina þegar fjöldi kvenpersóna í myndunum fór yfir eina. Hugmyndin um Bechdelprófið hefur aldrei snúist um að hver einasta kvikmynd standist það heldur margar eða flestar eða að minnsta kosti einhverjar. Sú krafa er eðlileg og enginn (eða fáir) kvartar raunar yfir myndum þar sem konur vantar ef þær eru á annað borð góðar.

Next
Next

Meðferð og lífsháski