Allraheilagramessuhelgina las ég tvær bækur, eftir systur mína og vin en ég er ekki gagnrýnandi og skrifa ekki bókadóma svo að ég má samt ræða þær. Þetta er þriðja útgefna skáldsaga Katrínar og sú fyrsta eftir hana eina þannig að eðlilega var ég forvitinn. Enga þeirra las ég í handriti en Vorblót lagði ég að velli á afmælisdegi Einars Benediktssonar og líkaði vel. Styrkur bókarinnar liggur í persónusköpuninni, flóknum samskiptum persónanna og góðum tökum á Hórasarsatíru. Við kynnumst persónum vel og þær eru forvitnilegar sem er fjarri því að vera sjálfsagt í 21. aldar norrænum glæpasögum. Ráðgátan kallar reyndar á að tilefni morðsins sé móðu hulið alllengi en í bókinni er þungur undirtexti sem er nátengdur meðferðar- og heilunarþemanu, þjáningunni og tilvistarvanda tiltölulegra vel stæðra nútímamanna í stöðugri hamingjukreppu. Flóknar stjórnlausar tilfinningar, tilfinningaleysi og sviðsetning sjálfsins koma líka við sögu. Líkt og t.d. í Hrafnkels sögu hlýtur lesandinn að hafa afar blendnar tilfinningar til aðalpersónanna Egils og Vigdísar. Katrín lýsir miklu meira en t.d. ég en nær mestum hæðum í hárfínum athugasemdum um klisjukennt orðalag nútímans. Fyrir utan Yrsu og einn annan sem ég er of hógvær til að nefna hefur vantað húmor í íslenskar glæpasögur, hann er vitanlega engin skylda en skaðar ekki. Agatha var mjög fyndin á köflum svo að ekki sé minnst á Sjöwall og Wahlöö.
Daginn eftir (fyrsta dag nóvembermánaðar) las ég aðra álíka grípandi bók, ólíka Vorblóti að stíl en samt í grunninn um ekki ósvipuð þemu þótt lífsháskinn sé enn sterkari. Báðar bækurnar hefði ég auðveldlega geta lesið á þremur tímum en treindi mér þær yfir níu. Skuggar af Kili eftir Birgi Tjörva Pétursson lögmann er ekki sakamálasaga þótt forn ráðgáta svífi sannarlega yfir vötnum, mér vitanlega vel kunn eftir lestur Aldarinnar átjándu og Íslenskra örlagaþátta. Miðaldra þýðandinn Halldór er af Reynistaðaætt, Nørrebrobúi til margra áratuga og nú dauðvona. Eigin sorg og tilvistarvandi senda hann alla leið í Skagafjörðinn og til Indriða Einarssonar í tilraun til að ná utan um líf sitt á lokamínútum þess. Ferðalag hans einkennist af óreiðu en er afar grípandi, ekki síst tilraunir þessa einstæðings til að endurvekja og mynda tengsl áður en það er of seint. Fátt sameinar Nørrebro og Skagafjörðinn annað en söguhetjan en á báðum stöðum eru dularfullir bræður með óviss örlög og báðir staðir verða áhrifamikill og vel dreginn upp bakgrunnur fyrir angist hans. Þetta er áleitin saga sem gæti vel orðið sígild.