Konur sem þegja
Turninn á Ríkisútvarpinu kom skemmtilega á óvart, líkt og danski þátturinn Lögregluvald sem ég horfði á skömmu áður. Mér leist ekki í fyrstu á fléttuna enda lofthræddur og óttaðist Sólheimablokkirnar mjög fyrstu árin eftir að ég flutti í Álfheima fjögurra ára. En þátturinn reyndist forvitnilegur og einkum aðalpersónurnar tvær, Sarah Collins (leikin af Gemmu Whelan) og Lizzie Adama (leikin af Tahirah Sharif). Í fyrstu syrpunni verður hin unga Lizzie vitni að voveiflegum atburði á þaki turns sem Sarah rannsakar og gátan snýst um ábyrgð Lizzie og annarra lögreglumanna á því hvernig fór. Báðar eru Sarah og Lizzie komnar á endastöð í vinnunni í lok þáttaraðarinnar en hittast á nýjum vettvangi í næstu syrpu sem er sérlega áhugavert fyrir Íslendinga sem eru stöðugt að rekast hver á annan í ýmsum kringumstæðum. Annað eins getur jafnvel gerst í milljónaborgum á borð við Lundúnir eins og ég komst að þegar ég stóð eitt sinn óvænt við hlið Carol Clover á Fifth Avenue.
Ég er farinn að bera alla góða sjónvarpsþætti um löggur saman við Forsæludalinn sem er þó öllum fremri en mér fannst Turninn býsna góður jafnvel þegar engir turnar sáust, einkum Sarah sjálf sem er hörkutól og virðist fyrst æði hornótt en þó góð í vinnunni. Hún lendir í reglulegum árekstrum við starfsfélagana, einkum hinn kvensama KIeran Shaw, hina áðurnefndu Lizzie sem hann heldur við og að lokum jafnvel félaga sinn Steve. Öfugt við marga skáldaða lögreglumenn er Sarah ekki drykkfelld, fer ekki á skjön við lög og reglur eða fagmannleg ferli (öfugt við hina áköfu Lizzie Adama) og reynir oftast nær að vinna með þeim sem hún þarf að starfa með. Hins vegar finnst mér hún skemmtilega laus við að gera sér rellu út af engu eins og sést þegar hún er látin vinna með hinni áhugalitlu „Elaine feitu“ sem engum fellur við — Sarah notar aldrei þetta viðurnefni og ég get þess einungis vegna þess að í þáttunum er tekin skýr afstaða gegn líkamssmánun. Elaine nennir enda engu í fyrstu, sennilega uppgefin af áralöngu vanmati, en Sarah lætur það ekki fara í taugarnar á sér. Smám saman ná þær Elaine saman og leysa flókið 25 ára gamalt morðmál.
Líklega er persónusköpun það sem dregur mig einna helst að lögguþáttum og öðru raunsæislegu efni og sést það kannski á mínum eigin bókum. Hún er þó oft merkilega léleg í hasarmyndum og sjónvarpsþáttum en þeim mun ánægjulegra er þegar hægt er að fá áhuga á persónunum án þess að fá ofurskammta af upplýsingum um einkalíf þeirra. Löggurnar í Turninum og aðrar persónur líta flestar út eins og venjulegt fólk og glæpamennirnir hafa enga ofurmannlega krafta heldur eru hættulegir eins og slíkir kónar eru í raun og veru. Einn þeirra afvopnar Sarah Collins á elleftu stundu sem er nokkurn veginn sama flétta og í minni bók sem er eldri en þátturinn (en væntanlega ekki eldri en bók Kate London sem hann er grundvallaður á). Þannig bjargar hún óvænt lífi sinnar gömlu óvinkonu Lizzie.
Rasismi leikur mikið hlutverk í fyrstu þáttaröðinni. Lögreglumaðurinn sem fellur af turninum lætur óvönduð orð falla um sextán ára stelpu og biður síðan Lizzie Adama að standa með sér. Ætlast er til samstöðu lögreglunnar gegn innflytjandanum Younes og dóttur hans en Sarah Collins neitar að taka þátt í slíku. Ekki er hún heldur sátt þegar félagi hennar Steve stendur að lokum með Lizzie og kemur í veg fyrir að henni verði refsað fyrir lygarnar. Allt snýst þetta í höndunum á Söru sem neyðist til að flytja sig til í starfi en þá bregður svo við að hún nær að lokum sáttum við allar löggurnar sem hún áður lenti upp á kant við. Sarah Collins erfir ekki neitt við neinn. Þótt hún sé réttsýn er það aldrei á kostnað meðalhófsins og þær „Elaine feita“ eru að lokum orðnar frábært teymi sem getur leyst hin flóknustu mál.
Kvennabósinn Kieran Shaw breytist líka úr andstæðingi í flóknari og jákvæðari persónu í seinni syrpunni en heldur þó áfram að svíkja eiginkonuna með Lizzie sem á sér þó annan mun geðslegri aðdáanda, Arif að nafni. En Shaw virðist vera góður í rúminu sem er upphaf og endir alls í öllu afþreyingarefni og stundum (en ekki alltaf) í raunveruleikanum líka. Þannig eru allar fjórar löggurnar sem eru í aðalhlutvekri á endanum allar réttlætisins megin og hið sama gildir um nýju félaga Söru í morðdeildinni. Nýi yfirmaður hennar (geðþekkur gamall bumbukall) dæsir fyrst yfir þessum kvenvargi (þó að Sarah hegði sér raunar að engu leyti eins og vargur) en er að lokum fullur hrifningar á henni.
Mér finnst persónulega margt líkt með Söru Collins og Kristínu, lögreglukonunni í mínum bókaflokki. Þó að þær séu harðar í horn að taka fara þær ekki fram með neinum látum eða hófleysi og leysa málin í samvinnu við aðra, hægt og rólega. Það gildir ekki síst um 25 ára morðmálið sem Sarah er aðallega fengin til að sinna vegna þess að yfirmaðurinn vill losna við hana og telur fullvíst að málið sé áleysanlegt. En smám saman beitir Sarah rökhugsun sinni og kemst á slóðir vitna sem færa henni lykilinn að málinu. Hún hefur morðingjann í hendi sér, síðan sleppur hann en að lokum nær hún honum aftur – þó að ekkert komi fram um sakfellingu.
Konur sem þegja yfir kynferðislegri áreitni og ofbeldi eru það sem þátturinn snýst einkum um og Sarah Collins stendur með þeim. Þessir sjónvarpsþættir eru augljóslega gerðir í kjölfar Jimmy Savile málsins þar sem enska lögreglan reyndi að gera upp við fortíð sína og áhugaleysi um kynferðislegt ofbeldi. Í Turninum er lögreglan sannarlega með fórnarlömbunum og þættirnir standast raunar einnig Bechdelprófið með miklum ágætum. Margt hefur breyst á 40 árum og nú eru það ekki lengur Morse og Lewis sem leysa málin heldur Sarah Collins og „Elaine feita“. Ég myndi jafnvel kalla þær valkyrjur nema að það orð er illu heilli ekki lengur nothæft sem hrós á Íslandi.