Þegar Tyrkinn kom
Árið 1969 gaf Sverrir Kristjánsson afi minn út Reisubók Ólafs Egilssonar á vegum Almenna bókmenntafélagsins og þess vegna var hún til heima og ég gerði ungur fyrstu tilraun til að lesa hana þó að 17. aldar íslenskan bæri mig að mestu ofurliði. Nýlega birti Bókmenntaalfræðiritið grein um Ólaf þar sem fram kemur meðal annars að hann var líklega ekki fæddur 1564 eins og haft hefur verið fyrir satt seinustu öldina og það gladdi auðvitað ritstjórann að koma nýjum fróðleik á framfæri. En vitaskuld væri sá fróðleikur lítils virði ef almenningur þekkir ekki Ólaf eða Tyrkjaránið og þess vegna er mikilvægt að koma þessum fróðleik á framfæri við komandi kynslóðir eins og Íslendingar voru fjarska duglegir að gera undir lok 19. aldar og alla 20. öldina, áður en þeir fóru að gerast hirðulausir um bókmenntir, menningu og sögu fyrir 25-40 árum. Þess vegna gladdi mig mjög þegar vinur minn benti mér á nýlega bók Brynhildar Þórarinsdóttur um Tyrkjaránið ætlaða 9-12 ára og mér til gleði er þetta afar fagmannleg útgáfa með fjölda aðlaðandi mynda, skynsamlegra skýringa af ýmsu tagi auk fróðleiks um Tyrkjaránið milli kafla. Bækur eins og þessar opna gáttir að stærra heimi og gott væri ef þar væri hægt að svala forvitninni sem mest á netinu en á því er raunar misbrestur núna.
Það eru ekki margir barnabókahöfundar jafn vel heima í sögu og menningu þjóðarinnar og Brynhildur Þórarinsdóttir og þess vegna er eins líklegt að kennarar og foreldrar sjálfir læri margt nýtt á að lesa bækurnar með krökkunum, meðal annars um sjálfa ræningjana frá Algeirsborg, um hvernig Tyrkjaránið snýst ekki aðeins um Vestmannaeyjar og um það hve margir Íslendingar urðu eftir og fátt vitað um örlög þeirra. Sjónarhorn barnsins er notað sem er nýjung en á sinn hátt er textinn tryggur hinni fornu heimild, sögu séra Ólafs. Á sínum tíma vakti athygli mína hversu opinn og ódómharður séra Ólafur var þrátt fyrir að standa föstum rótum í 17. aldar rétttrúnaði. Ekki þarf að koma á óvart að Sverrir afi hafi hrifist af honum þar sem hann var margfróður um 17. öldina og skrifaði um hana ófáar greinar fyrir almenning. Brynhildur er á sinn hátt arftaki hans þegar kemur að skýrri vitund um bæði upplýsingar- og afþreyingargildi sögulegra viðburða og þó að þessi bók sé eðlisólík hans verkum má finna þar sama léttleika og fimi í miðlun efnis. Fræðslugildi textans er sterkt, miklu þarf að miðla og um leið þarf textinn að ná til nýrri kynslóða og það er enginn hægðarleikur að brúa þetta bil. Stöku sinnum leyfir Brynhildur sér þó tilþrif í stíl, eins og til dæmis má sjá að neðan um buxnaskálmarnar sem fela má lömb í. Hún hefði mátt gera það oftar að ósekju. Einnig sýnir blaðsíðan að neðan aðlaðandi myndir Bergrúnar Írisar Sævarsdóttur; hún er í svipuðu hlutverki og Halldór Pétursson var fyrir mína kynslóð.
Á næsta ári eru 300 ár liðin frá Tyrkjaráninu og gott er að vita að Miðstöð menntunar og skólaþjónustu er undirbúin og með þetta góða efni á boðstólum. Þar með er ekki sagt að sú gagnrýni eigi ekki rétt á sér að það sárvanti meira efni fyrir skólana og þar verður bæði að höfða til nútímans og miðla sögulega réttri og nákvæmri þekkingu. Þessi bók stenst slík próf og er góð fyrirmynd að því leyti. En fleiri bækur þarf ef duga skal.