Ógurlegur trúður
Árið 2026 fór ekki aðeins illa með íslenskar dægurlagahetjur bernsku minnar heldur hurfu þau Dolly Parton og Tim Curry sama dag og aðeins mánuði síðar en Sam Neill. Ekki get ég breytt síðunni í minningargreinasíður Morgunblaðsins en samt leitaði á mig að segja nokkur orð um Dolly og líka hann TIm, ekki síst þar sem The Rocky Horror Picture Show er gamall heimilisvinur. Systir mín átti plötuna og hún var mikið spiluð heima löngu áður en ég sá sjálfa kvikmyndina. Það er ekki síst Tim Curry sem hélt henni uppi, raunar þannig að ég hef aldrei séð Frank-N-Furter sem jafnast á við hann. Orðið „sexý“ er kannski ofnotað en það þarf Frank-N-Furter helst að vera og því skilaði Tim Curry eindæma vel. Hér má komast að fleiru um hvað mér finnst um þennan framsækna söngleik og bíómyndina en Tim stóð sig í hlutverkinu að þar með skapaðist sú hætta að áhorfendur sættu sig aldrei við hann í neinu öðru (fyrst var hann efins um að taka að sér hlutverkið einmitt þess vegna) og það tók hann vissulega tíma að komast alveg yfir Frank. Það urðu líka örlög hans að verða Hollywood-Breti. Þó að hann hafi hafið sinn feril á leiksviðum Bretlands (var meðal annars sá fyrsti sem lék Mozart í leikritinu Amadeus) man ég ekki eftir honum úr neinni einustu ensku kvikmynd.
Mér skilst að aðrir hafi komið til greina að leika hinn ógurlega trúð Pennywise í sjónvarpsmyndunum tveimur It (1990) en sem betur fer komst hlutverkið í réttar hendur og þar skapaði Tim Curry eitt ógurlegasta skrímsli kvikmyndasögunnar. Frammistaða hans í myndunum er enda mun frægari en þær sjálfar. Hann var líka eftirminnilegur að leika Long John Silver á móti prúðuleikurunum eða í sakamálafarsanum Clue sem ég verð raunar að játa að muna lítið eftir nema að hafa haft gaman af. Ég þykist líka muna að hann hafi stolið seinni Home Alone myndinni (Donald veitti litla keppni). Tim Curry var bestur í yfirgengilegum hlutverkum fremur en raunsæjum og hætti líklega aldrei að vera sviðsleikari í sér. Jafnvel þegar hann var staddur í misheppnuðu verki (eins og þegar hann lék Richelieu í afar vondri gerð af Skyttunum þremur upp úr 1990) mátti samt bera virðingu fyrir stórleiknum. Sjálfan paurinn lék Tim Curry oftar en einu sinni og virtist augljós kostur í slík hlutverk. Einhver mun hafa sagt á netinu að vikan sem þau Dolly hurfu úr heiminum hafi verið vond fyrir dívur. Líka fyrir okkur hin sem erum kannski ekki í alveg sama sambandi við okkar innri dívu.