Viðtal um léttvægi
Mér var nýlega boðið í eitt elsta og vinsælasta hlaðvarpið um norræna sögu og bókmenntir, The History of the Vikings, í umsjón Noah Tetner (frá Wisconsin) til að ræða bók mína um minni háttar persónur í Íslendingasögum og öðrum fornbókmenntum. Að sjálfsögðu get ég ekki endurtekið viðtalið hér enda vil ég frekar að fólk kaupi og lesi bókina. Eitt af því sem ég nefndi þar er að það hafi verið ferðalag að skrifa þessa bók og eins er lesendum boðið í ferð með mér með því a’ lesa verkið. Þannig finnst mér að fræðibækur ættu að vera og hef vissar efasemdir um fræðibækur í hugvísindum sem helst á að vera hægt að endursegja í nokkrum setningum. Þannig skrifa ég ekki. Brotin þurfa öll að leggjast til að heildin verði ljós.
Í viðtalinu segi ég frá sumum aukapersónunum sem fá nánari umfjöllun í bókinni. Þó að mitt markmið sé að varpa ljósi á efnið tel ég ekki að það þjóni tilgangi að lýsa öllum tilvikum í einni fræðibók heldur á bókin að vera virðingarverð tilraun til að ná utan um flókið efni. En fyrir þá sem vilja skemmri skírn fyrst er þetta viðtal sem sagt á netinu og vísað á það hér að ofan.