Teppi úr mannfólki
Að kalla nýja Túrgenjevþýðingu Áslaugar Agnarsdóttur stórvirki og afrek er eiginlega óþarft þar sem aðrir hafa orðið fyrri til og það blasir auk heldur við hverjum manni sem handfjatlar bókina. Það fyrsta sem ég las var eftirmálinn sem er afar gagnlegur og veitir meðal annars yfirlit um sögu Túrgenjevs á Íslandi; eiginlega finnst mér að allar bækur ættu að hafa slíkan eftirmála! Sjálf bókin er vitaskuld löng og mikil enda í henni 25 smásögur sem mynda þó heild en þar sem varla er hægt að tala um fléttu í bókinni eru það einkum heildaráhrifin sem um ræðir. Fyrir þá sem eiga erfitt með lestur er þetta frábær bók því að það er hægt að lesa 5 sögur, 10 sögur eða þær allar og samt fá dágóða hugmynd um verkið. Ég sagði einhvern tímann í gamni að söguþræðir einkenndu lélegar bókmenntir sem sennilega var ofsagt en staðreynd er það samt að góð bók þarf ekki endilega söguþráð og góður skáldskapur er ekki endilega skáldskapur. Á dögum Knausgaards og Ernaux er „autofiction“ (eða sjálfssaga) vinsælt hugtak en það er vitaskuld hvorki nýtt né endilega sérstakt. Sjálfssöguhliðin er til á ýmsum verkum sem þó skýla sér á bak við fléttu og sjálf höfunda í sjálfssögu er ekkert minna skáldað en aðrar skáldsagnapersónur. Kannski snýst þetta einkum um merkimiða þó að fjarlægðin frá „veruleikanum“ sé auðvitað líka eitthvað sem ræða þarf.
Mín fyrstu kynni af rússneskum 19. aldar höfundum voru þeir Dostojevskí og Tolstoj en síðan Gógol og Tjekoff. Túrgenjev er mér auðvitað kunnur af afspurn en kannski er þetta fyrsta verk hans sem ég les í heild sinni og fljótlega kom í ljós að best var að leggja til hliðar allar væntingar sem hinir risarnir hafa skapað, Túrgenjev er allt öðruvísi en ekki síður mikilvægur. Sagt er að þessi bók hafi haft svo mikil áhrif á jafnaldra hans Alexander 2. Rússakeisara að henni megi helst líkja við Kofa Tómasar frænda og til hennar megi rekja afnám bændaánauðarinnar. Ég sel slíkar goðsagnir ekki dýrar en ég keypti en sannarlega eru lýsingar Túgenjevs sláandi og magnaðar. Fram hefur komið að amma Túrgenjevs Jekaterína var líka áhrifavaldur á verkið en sú var alræmdur bændakúgari. Það er þó ekki þannig að Túrgenjev prediki eða gagnrýni. Hann lýsir hins vegar af mikilli nákvæmni og snilld og þær lýsingar draga samfélagið svo skýrt fram að bók hans verður mun sterkari en nokkur yfirlýst ádeila. Túrgenjev notar myndlíkingar nánast ekkert heldur aðeins beinar myndir en þær eru sterkar og eftirminnilegar og stundum felast í þeim skýr skilaboð um samfélagsgerðina. Um eitt ungmennið af betri stigum segir hann að stígvél hans hafi greinilega verið keypt á hann sjálfan en ekki föðurinn og þar með veit maður margt um samfélagið. Mér flaug í hug erindi Más Jónssonar forðum þar sem kom fram að fyrir 150 árum hefðu stígvél af drukknuðu fólki verið boðin upp á Íslandi.
Mér varð stundum hugsað til bókarinnar The Egg and I eftir Betty MacDonald (1907–1958) þegar ég las Túrgenjevs en um þá bók þyrfti ég auðvitað að skrifa á þessa síðu. Bók MacDonald hefur verið kölluð safn gamansamra frásagna úr eigin lífi þótt gamanið sé við nánari skoðun talsverðri alvöru blandið og hið sama má segja um Minnisblöð veiðimannsins, öfugt við hina frægu sögu Beecher Stowe er þetta lunkin frásögn sem fer ekki af stað með lúðrablæstri og skilningurinn sem hún skapar á hlutskipti hinna snauðu myndast sem sagt smám saman við lesturinn. Lesandinn þarf eiginlega að búa til boðskapinn; Túrgenjev er ekki að mata hann með einu eða neinu heldur aðeins að reyna að fanga þann veruleika sem hann sér með hæfilegu blandi natúralisma og gamansemi. Sjálfur er sögumaðurinn í senn áberandi og dulinn; nærvera hans kannski einmitt dularfyllri vegna þess að henni er engan veginn leynt. Skilningur lesanda á honum verður til smám saman með lestri smásagnanna — sem eiginlega má lesa í hvaða röð sem er.
Smásögur Túrgenjevs eru auðugar af fólki sem auðvelt er að sjá fyrir sér. Þessi lýsing á unglingnum Fedja úr smásögunni um Bezhinengjarnar sat í mér: „Sá fyrsti, Fedja, var elstur þeirra, á að giska fjórtán ára. Þetta var myndarlegur strákur með fallega og fíngerða andlitsdrætti, ljóst, liðað hár og björt augu, og stöðugt með bros á vör sem var bæði glaðlegt og fjarrænt í senn. Af útlitinu að dæma var hann af efnuðu fólki kominn og hafði riðið út á akurinn sér til skemmtunar en ekki af neyð. Hann var í skrautlegri bómullarskyrtu með gulri bryddingu. Lítill vaðmálskufl, nýsaumaður, sem hann hafði kastað kæruleysislega yfir grannar axlirnar, var að því kominn að renna af honum. Hárkambur hékk í fölbláu belti hans. Lág stígvélin voru augljóslega hans eigin — ekki af föður hans“ (bls. 134). Hinn óorðaði boðskapur um kúgun og ójöfnuð er lesanda ekki efst í huga í fyrstu þar sem ritið minnir stundum á hin gamansömu Pickwickskjöl Dickens (en eflaust mætti lengi bera þá Túrgenjev saman). Líkingin um bútasaumsteppi er sennilega ofnotuð en á þó ekki illa við því að þegar lesandinn er búinn blasir við honum listaverk sem er flókið, nykrað og engan veginn fallegt ef menn trúa á einingarnar þrjár en samt á sinn hátt ómótstæðilegt. Ekki er minnsti vafi á að þessi bók hefur haft mikil áhrif á bókmenntir næstu aldar og hefur enn. Minnisblöð veiðimanns er kjörin fyrir greinda lesendur sem ekki vilja láta mata sig.