Horfnar stúlkur í svarthvítu

Twin Peaks er meistarastykki David Lynch frá menntaskólaárum mínum en löngu fyrr gerði Otto Preminger myrkurmyndina Laura (1944) sem líka fjallar um myrta stúlku með sama nafn og sú var sýnd í sjónvarpinu föstudaginn 25. janúar 1985. Þá sá ég hana en aldrei síðan og þar sem ég er ekki lengur fjórtán ára hvarflaði að mér í sumar að það gæti verið ómaksins virði að sjá hana aftur. Laura er samin upp úr skáldsögu Veru Caspary (1899–1987) sem var ný þegar hún var kvikmynduð. Eins og í hinu mikla verki David Lynch vokar hin látna (Gene Tierney) yfir verkinu en birtist síðan í miðju kafi og reynist vera sprelllifandi. Lögreglumaðurinn Mark McPherson (Dana Andrews) er að leita hennar en tveir ástmenn eru einkum grunaðir um verkið, hinn slepjulegi Shelby Carpenter (Vincent Price) og hinn hnyttni Waldo Lydecker (Clifton Webb). Kvikmyndin er talsvert frábrugðin sögunni en handritið þótti hlaðið gullmolum sem flestir eru lagðir í munn Lydecker (t.d. sá um að hann noti ekki ritvél heldur blekpenna dýft í eitur). Í bókinni er hann akfeitur og upphaflega átti hinn stórvaxni leikari Laird Cregar (sem lést skömmu eftir að myndin var frumsýnd) að fara með hlutverkið en síðan var hinn væflulegi Clifton Webb fenginn í hans stað. Báðir sérhæfðu sig í skúrkum af því tagi sem Gore Vidal kallaði „Fag Villain“ á sínum tíma en þó af ólíku tagi.

Lögreglumaðurinn McPherson er mjög í anda þeirra sem Humphrey Bogart lék á sama tíma og er iðulega með rettu í munni þegar hann slengir fram grunsemdum sínum. Illu heilli er Dana Andrews enginn Bogart og flestir aðrir leikarar myndarinnar eru áhugaverðari en hann. Waldo Lydecker beitir stílvopninu sem sveðju og vegna þess að hann er fyndinn áttar áhorfandinn sig ekki fyrst á að hann er líka stórhættulegur vegna afbrýðisemi sinnar og reynist óvænt vera skúrkurinn að lokum þó að frænka hinnar horfnu frú Treadwell (leikin af Judith Anderson sem sló í gegn í Rebeccu og fer hér með línur sem gætu verið úr þeirri mynd) og kærastinn Shelby (hinn álíka skuggalegi Vincent Price) dragi að sér allar grunsemdir lengi vel. Lydecker nýtur þess líka að vera sögumaðurinn snemma í myndinni; eins og Agatha Christie vissi og nýtti sér í tveimur bókum strax í upphafi ferils síns er fólk ólíklegt til að gruna sögumanninn, allra síst ef hann er hnyttinn og hégómlegur eins og Waldo Lydecker.

Ekki veit ég til að bent hafi verið á áhrif Lauru á hina frægu þætti um spíttmæðgurnar frá Connecticut en líkt og í þeim tala allir hratt og eru með eindæmum orðheppnir. Orðspjótin fljúga á milli persónanna og kannski hafði Preminger fundið hina fullkomnu uppskrift að myrkurmynd (film noir) þarna: hnyttin, drungaleg og fáguð, allir leikarar stjörnur og leika vel (nema helst hinn trénaði Dana Andrews) og aðalpersóna sem hvort sem hún er talin lífs eða liðin hefur þvílík áhrif á allar aðrar persónur að þær komast ekki undan álögunum. Eins er engum treystandi í sögunni og enn eru að slá í gegn sögur með óvæntum snúningi sem oft eru einmitt kenndar við stúlkur sem stundum eru horfnar en ævinlega ekki allar sem þær eru séðar. Laura gæti því sem næst verið ný þótt hún sé komin á níræðisaldur.

Ég veit ekki hvort ég naut. myndarinnar betur núna en fyrir 41 ári þegar fjölskyldan horfði á hana saman í sjónvarpinu; ég verð að játa á mig söknuð eftir stofunni í Álfheimum þegar við söfnuðumst þar saman við sjónvarpið; kannski langar mig að hverfa þangað aftur þegar ég dey. Mig minnir að við höfum öll verið svolítið hissa þegar Waldo Lydecker reyndist vera skúrkurinn og leikarinn Clifton Webb er sannarlega áhugaverður sjálfur. Preminger tók nokkra áhættu þegar hann ákvað að gera þennan hálfsextuga Broadwayleikara að kvikmyndastjörnu en það gekk svo vel upp að Webb varð góðkunningi bíógesta í hálfan annan áratug, lék meðal annars í fyrri skálduðu myndinni um Titanic árið 1953 en þar var samband föður og sonar í öndvegi (þeir drukkna báðir). Webb bjó með móður sinni fram yfir sjötugt og var óhuggandi þegar hún lést. Hann dó skömmu síðar en hin fjögur voru öll enn á lífi þegar ég sá myndina 1985. Þau dóu síðan á 10. áratugnum, svona til að minna mig og ykkur á að tíminn líður.

Next
Next

Danskur Dosti