Samfélag heilagra

Það er ekkert sjálfsagt við það að máltíðir leiki lykilhlutverk í trúarbrögðum en það á við um kristni og skírdaginn sérstaklega en hans vegna eru matur og drykkur (hold og blóð Krists) eitt af sakramentunum sjö. Náttverður Krists með lærisveinum sínum verður táknrænn fyrir alla samveru kristinna manna og samfélag vegna þess að eftir hann lauk samveru þeirra og einmana þjáning Krists hóf. Eins lagði hann þar lærisveinum sínum línurnar og spáði fyrir um svik Júdasar þó að enginn gengi svo langt að grípa til aðgerða gegn svikaranum.

Listmálarar hafa að vonum túlkað máltíðina hver með sínum hætti, sumir sem hálfgert karnival (sjá að ofan), aðrir með höfuðáherslu á geislabauga lærisveinanna (allra nema eins sem þar með er auðþekktur) og hinn unga Jóhannes sem hálfgerðan kjölturakka frelsarans. Ástúðlegt samband þeirra tveggja var furðu lítið tabú á fyrri öldum enda kallaði Jóhannes sig „lærisveininn sem Jesús elskaði“ í guðspjalli sínum. Á síðari öldum hefur það hins vegar vikið fyrir áhuga á kvensemi Jesú vegna þess að ástarsambönd karla eru orðin innlimuð í nútímalega túlkun.

Að ofan má sjá alleðlilegt borðhald með Jesú við endann og matargesti báðumegin. Hin leiðin er að láta alla lærisveinana sitja sömumegin og Jesús í miðjunni sem hefur heillað áhorfendur öldum saman þótt það virðist stundum ansi uppstillt en þar með þarf auðvitað enginn lærisveinn að snúa baki í áhorfanda. Listin spyr ekki um raunsæi fyrst og fremst heldur áhrifamátt.

Next
Next

Hvert var erindi Tolkiens?