Hvert var erindi Tolkiens?

Ég var svo lánsamur að hitta bandaríska Tolkienfræðinginn Matthew Dickerson um daginn og lesa í kjölfarið bók hans, The Hobbit Journey. Bókin var einmitt það sem ég vonast eftir af hugvísindum og það sem ég hef iðulega sjálfur reynt að gera, þ.e. fræðimaður glímir við það sem hann og aðrir geta fengið úr merku bókmenntaverki. Þegar við hittumst ræddum við Dickerson aðeins um þróun Tolkienfræða sem snúast seinustu áratugina mjög mikið um textafræði og þróun texta, nákvæmlega eins og sú fornenska textafræði sem Tolkien sjálfur gagnrýndi svo ákaft í bók sinni um Bjólfskviðu sem ég kappkostaði á sínum tíma að koma út á íslensku (í þýðingu rithöfundarins Arndísar Þórarinsdóttur) í Lærdómslistaritröð Bókmenntafélagsins. Ég geri ráð fyrir að einhverjum hafi í fyrstu ekki þótt Tolkien fullkomlega verðugur að koma út á þessum vettvangi — það eru afar hefðbundin viðhorf menningarsnobbara við þessum vinsæla höfundi alveg fram á okkar tíma— en nú er bókin ein af þeim Lærdómsritum sem eru nánast uppseld.

Þar sem ég hef hitt Dickerson veit ég hversu ofarlega náttúran er honum í huga en bókin snýst samt ekki síst um afstöðu Tolkiens til friðar og ófriðar sem sannarlega er mikilvægt þema í Miðgarðsskáldsögum hans tveimur. Það sem Dickerson dregur ekki síst fram er andúð Tolkiens á sjálfri hugmyndinni um stríð sem eflaust á sér að hluta ævisögulega rót þar sem Tolkien tók þátt í hinni tilgangslausu fyrri heimsstyrjöld sem var þó afar vinsæl þegar hún hófst. Eðli siðferðisins og hins frjálsa vilja eru lykilhugtök hjá Dickerson og þetta er mikilvægt efni. Meðal annars þess vegna féll mér vel við bók hans en aðallega vegna þess að greining hans er nákvæm og sótt í verkið fremur en í fyrirframgefnar skoðanir hans. Sjónarhornið er þó afar kristilegt og ekki víst að bókin höfðí til vantrúaðra. Tolkien var sjálfur kaþólskur þótt enginn væri hann trúboði. Hann trúði á skemmtisöguna sem hefði þó að verulegu leyti hulinn dídaktískan tilgang, kannski ekkert ósvipað miðaldahöfundi þótt sjálf frásögnin sé alls ekki miðaldaleg.

Next
Next

Fáyrðalist