Hin vanmetna árnýöld

Á fyrsta ári í íslensku tók ég námskeiðið Yfirlit bókmennta frá siðskiptum til raunsæis en þar voru ekki margir nemendur, aðeins þeir sem gátu lært að fara með nafn námskeiðsins. Margir þessara nemenda voru einstaklega gáfað fólk og slógu síðar í gegn sem sagnfræðidoktorar, útgefendur, skáld og hvaðeina og svo auðvitað vesalingur minn sem hef helgað mig miðaldabókmenntum en það merkir þó engan veginn að ég sé áhugalaus um efni fyrsta valnámskeiðsins míns í faginu. Það var sérstakt fagnaðarefni að áskotnast nýtt rit sem ritstýrt er af þremur miklum sérfræðingum í efninu, Aðalheiði Guðmundsdóttur, Margréti Eggertsdóttur og Katelin Parsons; ég iðaði í skinninu að lesa hana og leið eins og manni sem hefur rekist á sérstaklega áhugavert efni á dagskrá danska sjónvarpsins um kvöldið.

Auðvitað munu ekki margir aðrir en fræðimenn lesa bókina. Hún er öll á ensku og væntanlega ekki ódýr. Á hinn bóginn stóð hún vel undir væntingum. Greinarnar eru tólf og allar þéttar, meginþemað um samlíf kristilegs og veraldlegs efnis er afar brýnt og sérstakt fagnaðarefni að ritið leggi áherslu á þetta. Stundum er sagt í ritdómum að eitthvað sé ómissandi og á við um ýmis fræðirit en þessi bók verður sérlega mikilvæg þar sem hún verkar vel sem yfirlitsrit og fjallar um afar stórt atriði þegar kemur að bókmenntum árnýaldar. Óneitanlega er sterkt að hefja leikinn á ritgerð um bókmenntasöguritun og ekki síst fyrir mig þar sem ég er einn höfundur nýrrar bókmenntasögu sem vonandi allir lesendur síðunnar hafa keypt og lesið.

Auðvitað þótti mér líka gaman að vinar míns Sigurðar blinds er getið snemma í bókinni. Engum þarf að leiðast að fá nýjar greinar um Stefán í Vallanesi og fleiri austfirsk skáld (einn sérfróður um hann sat námskeiðið á sínum tíma og lét mjög til sín taka) og jafnvel fötlunarfræðin er með í ritinu. Almennt halda höfundar sér vel við þemað. Oft þusa menn — og einkum þó þornaðir og kulnaðir fræðimenn með samviskubit — yfir því að allt of margar fræðibækur komi út og enginn geti lesið þær allar. Það verður þó að meta hverju sinni í ljósi mikilvægis textans; The Sacred and the Profane eiga allir að lesa sem hafa minnsta áhuga á íslenskum bókmenntum frá siðaskiptum til raunsæis og að minnsta kosti ég drakk hana í mig af miklum áhuga.

Next
Next

Ógurlegur trúður