Loft um læri
Ég vissi ekki að jólagjafir hétu „julklappar“ á sænsku fyrr en ég sá gamanmyndina Tillsammans sem mig minnir að hafi verið þegar ég bjó í Danmörku í annað sinn haustið 2000. Þar var í aðalhlutverki sjálfur Michael Nyquist sem síðar varð að Mikael Blomkvist og myndin var svo vel heppnuð og skemmtileg að Vesturport ákvað skömmu fyrir hrun að gera úr henni íslenskt leikrit og fluttu inn sjálfan Gael Garcia Bernal en með því sannaðist ekkert nema að jafnvel fremstu leikarar heimsins þurfa að hafa úr einhverju að moða og Vesturporti er flest betur gefið en hárnákvæm og gagnrýnin samfélagsgreining og íslenska X-kynslóðin reyndist ekki í neinu sambandi við ástandið sem var verið að lýsa, öfugt við Lukas Moodysson sem þrátt fyrir að hafa enga sérstaka línu í myndinni aðra en að kommúnur séu betri með góðu fólki vantaði ekki samúð og skilning á persónum sínum. Hann hafði skömmu áður gert hina frábæru Fucking Åmål en hefur aldrei náð annarri eins tvennu síðan. Ég horfði fyrir nokkrum árum á fyrrnefndu myndina í sænska sjónvarpinu en komst þá að því að öfugt við dönsku þarfnast ég texta þegar kemur að sænsku en lét aftur á þetta reyna með því að horfa á Tillsammans á nýársdag. Kannski man ég hana óvenju vel en þetta gekk betur upp.
Sem alkunna er hefst Tillsammans á því að Franco deyr og kommúnan fagnar öll innilega en þó að þau geti sameinast um það (og í lokin um fótbolta) er ekki þar með að allt annað sé árekstralaust og sprungurnar koma bráðum í ljós því að kommúnumeðlimir rífast stöðugt um allt og ekkert, þó að í upphafi beinist athyglin að Elisabeth sem yfirgefur fyllibyttuna Rolf (Nyquist), eiginmann sinn, og fer með börnin í kommúnu bróður síns Görans. Þegar þau koma er fyrrverandi parið Lasse og Anna í miðri deilu um þá siðvenju hennar að ganga um nakin að neðan til að lofta um lífið og Lasse gerir þá eins. Þau eru annars partýfólk og eiga son sem er kallaður Tet eftir þekktri árás Viet Cong. Kærasta Görans vill opið samband sem þýðir þó aðeins að hún vill nota aumingjaskap Görans til að ríða yfirstéttardrengnum Erik (áður Silfverskiöld, nú Andersson) með miklum látum og segja Göran svo að hún fái betri fullnægingu með folanum. Hún pönkast síðan á Göran á margvíslegan hátt uns hann trompast og hendir henni út. Erik er krútt en fúllyndur og kífinn og líkist ýmsum sófakommum sem ég hef kynnst í tímans rás, er á Pathfinder-línunni og vill líta á sig sem verkamann þótt hann sé nepókrakki. Signe og SIgvard eru mjög lífræn og frekar leiðinleg enda hafa þau sem frægt er þá skoðun að Lína langsokkur sé „kapitalist och materialist“ sem hugsi aðeins um hluti („saker, saker, saker“).
Kommúnan er sannarlega ekki laus við galla og átök (þó að hugsjónamaðurinn Göran líki henni við heitan og góðan graut sem kemur úr einmana hörðum grjónum) en enn leiðinlegra er þó borgaralega lífið í lýsingu Moodysson; þar eru hræsnin, firringin og einsemdin allsráðandi á öllum heimilunum þremur sem sjást. Það sem kommúnulífið og borgaralega lífið eiga aftur á móti sameiginlegt er að enginn hugsar um börnin sem hanga í bílnum eða ráfa um allt í leit að umhyggju og ást. Skilnaðarbörnin hennar Elisabeth eru ekki par hrifin af kommúnunni og langar til að finna mótvægi annarstaðar en tekst það ekki því að það er ekkert að finna. Um það snýst meðal annars atriðið eftirminnilega þar sem Michael Nyquist fer að ranta um „julklappar“ en endar með að drekka um of, týna veskinu sínu og æpa og öskra á asíska veitingamenn uns lögreglan kemur þannig að börnin standa eftir ein á götunni. Síðar nær drengurinn saman við Tet í kommúnunni með því að leika „Tortur“ sem byggist á suður-amerískum pólitískum aðstæðum og síðan fara þeir í verkfall og heimta meira kjöt.
Þegar ég sá myndina aftur tók ég auðvitað eftir Ola Norell sem síðar hét Ola Rapace og var giftur Noomi Rapace (þau tóku upp þetta eftirnafn). Hann lærði heimspeki áður en hann varð þekktur með þessari mynd og var síðan í Wallander og að lokum alþjóðlegur leikari í Bond-myndum og víðar. Líklega hefur stingandi augnaráðið (að ofan) einkum gert hann frægan en Rapace hefur lent í alls konar vandræðum, meðal annars verið handtekinn fyrir fíkniefnabrot og heimilisofbeldi og fyrir vikið vildi Lukas Moodysson ekki nota hann í framhaldsmyndinni frá 2023 sem ég hef ekki séð (og óttast raunar að hún sé eins og seinni Stuðmannamyndirnar) en enn er ekki útséð um hvort honum hafi endanlega verið „slaufað“.