Umskiptingasaga
Eru frægir einstaklingar góðir foreldrar og hvað með það? Vitaskuld eiga öll börn sinn rétt en gildir okkur hin ekki einu hvort manneskja sem afrekaði mikið fyrir mannkynið var líka gott foreldri? — hvað sem það nú einu sinni er. Þar sem ég kaupi The London Review of Books las ég á sínum tíma allar greinar hinnar deyjandi Jenny Diski (1947–2016) um æsku sína og velgjörðarmann hennar Doris Lessing og sannarlega var Jenny ekki gagnrýnislaus á samband Doris og Peters sonar hennar. Þar fyrir utan var Lessing alræmd fyrir að hafa yfirgefið börn sín í Zimbabwe árið 1949. Og hver man ekki eftir geðillri fjörgamalli Doris segja ‘Oh, Christ’ við blaðamenn sem sátu fyrir henni með fréttina um að hún hafi fengið bókmenntaverðlaun Nóbels?
Nýlega kom skáldsaga Lessing Fimmta barnið út a íslensku og ég las hana af því tilefni. Þýðing Ragnheiðar Jónsdóttur fannst mér góð en oftast hef ég lesið Lessing á ensku og finnst stíll hennar áleitinn þótt einfaldur sé. En oftast eru það viðfangsefnin og hugmyndirnar sem staldra við í kollinum og svo er einnig um þessa frekar stuttu sögu um barnmarga foreldra sem eignast illviðráðanlegt barn sem er nánast eins og óvættur. Síðan þurfa þau að glíma við þessa erfiðu stöðu og taka ábyrgð á þessu skrímsli, jafnvel þótt sú ábyrgð (einkum móðurinnar) sé stundum á kostnað alls annars.
Lessing ofskýrir ekki og við fáum í raun aldrei að vita hvers vegna Ben litli er eins og hann er. Sagan er sláandi vegna þess að lesendur vilja gjarnan trúa á algengar goðsagnir um góða foreldra og börn sem litla engla. Jafnvel í nútímaflokkuninni í gerendur og þolendur hljóta börn ævinlega að vera þolendur en foreldrarnir þá hugsanlega skrímsli þótt oftast sé það „kerfið“. Þessi saga fylgir þó engum slíkum letifarvegi. Málið er flókið og foreldrar Ben átta sig varla sjálfir á eigin sekt eða sakleysi. Mér kom í hug Selkolluþátturinn sem ég hef nýlega rætt á öðrum vettvangi. Óneitanlega verður manni líka hugsað til Rosemary’s Baby eða bókar Lionel Shriver um ófétið Kevin. Umræðan um móðurhlutverkið fær mann líka til að hugsa um Sögu handa börnum en eins og vinkona mín benti á einkennast sögur Doris ekki af húmor og eru að því leyti ólíkar verkum Svövu.
Það verður ekki af Lessing að þetta er kjörkuð saga. En það er einmitt í skáldsögum og nánast hvergi annarstaðar sem dýpsta og erfiðasta umræðan fer iðulega fram. Við notum væmnar goðsagnir um foreldra- og barnaást iðulega til að breiða yfir hversu flókin þessi samskipti geta verið í raun og einkennst af einhverju öðru en ást.