Gráir menn með regnhlífar

Þó að Ian Fleming og John Le Carré hafi báðir skrifað skáldsögur um njósnara gætu þeir ekki verið ólíkari sem höfundar og jafnvel þótt ég hafi oft gaman af James Bond á hvíta tjaldinu er Le Carré minn maður þegar kemur að prentmálinu og skjánum. Vorið 1983 sat öll fjölskyldan límd við þættina Endatafl þar sem Alec Guinness fór með hlutverk embættismannsins fáorða og brúnaþunga George Smiley. Þessa þætti hef ég séð oft síðan og eins lesið bókina; ég veit ekki alveg hvers vegna ég get lesið hana aftur og aftur en pabbi heitinn var aðdáandi hvorstveggja og manni kippir í kynið með aldrinum. Sjónvarpið sýndi nýlega þættina Njósnari meðal vina sem eru gerðir eftir bók Ben Macintyre, A Spy Among Friends. Sú fjallar um hinn kunna Sovétnjósnara Kim Philby (sem mun vera frændi fv. vinar míns). Leikarinn Damian Lewis var framleiðandi þáttanna og leikur sjálfur njósnarann Nicholas Elliott (1916–1994) sem var vinur Philby en þurfti árið 1962 að fara til Beirut og fá njósnarann fræga til að játa skömmu áður en Philby stakk af til Rússlands þar sem hann síðan dvaldi til dauðadags. Mér finnst þetta prýðisgóðir þættir þótt ekki séu þeir ætlaðir fólki sem þráir hasar og sprengingar. Líkt og verk Le Carré einkennast þeir af tiltölulega hversdagslegu fólki að tala saman. Í aðalhlutverkunum eru auk Lewis hinn ástralski Guy Pearce (sem leikur Philby) og Anna Maxwell Martin sem fer með hlutverk persónu sem kölluð er Lily Thomas. Sú var raunar aldrei til en er látin yfirheyra Elliott eftir að Philby stingur af. Samleikur þeirra þriggja gefur þættinum gildi. Leikararnir þrír kunna vel til verka.

Líf njósnarans er að sönnu undarlegt og er vitaskuld nátengt ímyndaðri tryggð manna við yfirvöld í eigin landi. Kim Philby taldi sig reyndar aldrei gagnnjósnara þar sem hann áleit Sovétríkin sitt sanna föðurland allt frá 4. áratugnum. Fræg er yfirlýsing breska rithöfundarins E.M. Forster sem var menntaður í Cambridge eins og Philby: „Ef ég þyrfti að velja milli þess að svíkja land mitt eða vin minn, þá ætla ég rétt að vona að ég hefði kjark til að svíkja land mitt“ — hún er raunar birt í upphafi þáttanna. Philby taldi sig sem sagt ekki hafa svikið land sitt en sveik hann vini sína á borð við Nicholas Elliott? Kannski er það spurningin sem Njósnari meðal vina snýst um. Og hvað með Elliott sjálfan? Hvað vissi hann eða vissi ekki um Philby? Getur verið að hann hafi líka staðið frammi fyrir vali milli þess að svíkja ríkið eða vini sína og valið „rangt“? Elliott og Philby eru kynntir sem hetja og skúrkur þáttarins en lifa samt báðir á gráu svæði. Thomas er aftur á móti annars konar manneskja í stífri stéttaskiptingu Bretlands þar sem alltaf er hægt að heyra á máli manna hvaðan þeir koma. Hún á jafnvel hörundsdökkan eiginmann en engir slíkir birtust í njósnaraþáttum bernsku minnar (ég man eftir einum leigubílstjóra í Endatafli).

Svik eru auðvitað af ýmsu tagi. Philby var fjórgiftur og hélt auk heldur við eiginkonu Donald Maclean sem var annar af sovésku njósnurunum frá Cambridge. Melinda Maclean fylgdi manni sínum til Sovétríkjanna en sneri síðar aftur heim til Bandaríkjanna þar sem hún lést í hárri elli árið 2010 án þess að hafa nokkru sinni tjáð sig um njósnarana tvo í lífi sínu. Maclean, Guy Burgess og Anthony Blunt eru aðeins aukapersónur í þessum þáttum (alls ekki þeim fyrstu sem ég hef séð um þessa paura) sem snýst aðallega um þá Elliott og Philby og hvernig Elliott er grunaður um svik eftir að Philby hverfur; kannski samkvæmt þránni til að rekja alla þræði lengra og lengra. Fimmti njósnarinn Cairncross sést alls ekki enda var hann enginn sérstakur vinur hinna og ekki heldur af sömu stétt. Elliott aftur á móti féll vel í hópinn en er þó ekki talinn hafa njósnað fyrir Sovétmenn. Ferill hans í opinberri þjónustu beið þess þó aldrei bætur að hann hitti Philby skömmu fyrir flótta hins síðarnefnda. Hann neyddist til að fara í einkabisness og arðræna Afríku seinustu tvo áratugi starfsæfinnar. Philby fór til Sovétríkjanna og átti þar ágætt líf þó að þættirnir sýni hann brennivínsdauðann og konuna horfa á Valentinu í sjónvarpinu.

Njósnari meðal vina er iðulega dimmur og drungalegur. Stundum sér maður mest lítið. Þar er iðulega rigning. Damian Lewis og fleiri leikarar hvæsa línurnar sínar gjarnan. Kannski felst þung ádeila á breska stéttakerfið í allri grámóskunni; ég var ekki alveg viss. Þrátt fyrir þessa myrkurfagurfræði tekst Guy Pearce að miðla nokkru af hinum annálaða sjarma Philby sem ef til vill hafði áhrif á langlífi hans sem njósnara. Ég get aldrei séð Pearce án þess að muna eftir Memento og Priscillu eyðimerkurdrottningu þar sem hann sýndi á unga aldri að seint yrði hægt að festa á honum hendur. Hið sama átti vitaskuld við um Kim Philby sjálfan sem var kameljón líkt og allir njósnarar þurfa að verða. Núna á dögum endurlífgaðs kalda stríðs og stækra Rússafordóma sem jafnvel svokallað frjálslynt en heimsvaldasinnað fólk er óhrætt við að deila hugsunarlaust á netinu á hann sér varla viðreisnar von.

Þó að margir sakni augljóslega kalda stríðsins og séu æstir að endurvekja það er ég ekki þar á meðal. Það er mun vænlegra fyrir þjóðir að vera friðsamar og eiga sér enga óvini enda sannaðist 11. september 2001 að engin þjóð er svo stór og öflug að ekki verði höggi á hana komið; kannski holl lexía þótt viðburðir þess dags séu hörmulegir og martraðarkenndir frá sjónarhorni einstakra fórnarlamba sem okkur gengur vel að tileinka okkar nema farið sé til annarra heimsálfa. Sú hugmynd að fremur sé ráðist á friðsamar þjóðir en vígvæddar á sér enga stoð og hernaðarhyggjunni er haldið á lofti fyrst og fremst með því að fólk neiti að hugsa sjálfstætt. Í því ljósi er erfitt að hafa mikinn áhuga á Kim garminum Philby sem fylgdi einu stórveldinu fremur en öðru af eigin sannfæringu en að lokum af gömlum vana. Stórveldið sem hann „sveik“ hefur enda ekki minna á samviskunni þó að það njóti þess í okkar heimshluta að fórnarlömbin séu flest af öðrum kynþáttum og það er því erfitt að missa svefn yfir svikum Philby. Forster heitinn hafði nefnilega rétt fyrir sér að einu raunverulegu svikin eru við manns nánustu.

Next
Next

Þessa- og annarsheimsferðir andfætlings