Hvað gerir þýðandi?
Eftir smávægileg kynni af Wang An-Shih var eðlilegt að halda áfram að kynna sér kínverska ljóðlist og þar sem erfiðleikar við þýðingar milli eðlisólíkra tungumála voru orðnir hugstæðir mér og lessystkinum mínum var kannski ekki fráleitt að næst yrði á vegi okkar ljóðelskra Wang Wei (699–761) og ekki síst hin merkilega stutta bók Nineteen Ways of Looking at Wang Wei: How a Chinese Poem Is Translated (1987) eftir þá Eliot Weinberger (f. 1949) og Nóbelsskáldið Octavio Paz (1914–1998) sem er enda einn af þýðendum Wang Wei. Þessi litla bók er talin eitt af grundvallarritum þýðingarfræða og hún er sannarlega áhugaverð aflestrar enda gerði hún Weinberger að þekktum gagnrýnanda á unga aldri. Hann skrifar enda af umtalsverðu sjálfstrausti og heggur til hægri og vinstri, en er að mínu mati fullhrifinn af þeim orðaleik að Way og Wei hljóma svipað á enskri tungu.
Þannig telur Weinberger þýðingu W.J.B. Fletcher (1879–1933) dæmigerða fyrir eldri vestrænar þýðingar á kínverskum ljóðum þar sem þýðendur vildu gjarnan gera ljóðin skáldlegri á vestræna vísu og „leiðrétta“ þau. Þannig skapar Fletcher ljóðmælanda sem ekki er í frumtextanum og rímar af hind en á kostnað tryggðarinnar við sjálft ljóðið. Auk heldur finnst Weinberger Fletcher ekki nógu nákvæmur í þýðingu sinni en það hendir ýmis skáld. Persónulega finnst mér Fletcher ekki takast svo illa upp og það gladdi mig að hann skaut inn einu góðu „whence“.
Annað skáld sem Weinberger ræðir er Harold Witter Bynner (1881–1968) og þykir sá ekki síður ónákvæmur. Er hann allhnyttinn á kostnað þessa þekkta skálds eins og sjá má að ofan og finnst óskýrleiki hans líkjast einna helst opíumrús. Maður þakkar fyrir að WItter Bynner var látinn þegar Weinberger klauf hann í herðar niður með rimmugýgi menntahrokans. Frægt er þegar gagnrýnandinn Kristján Albertsson sendi svipaða breiðsíðu yfir skáldið Sigurð Grímsson (1896–1975) fyrir hálfvelgjulega ljóðlínuna „Mér fannst ég finna til“ (Við langelda, 1922) og gaf Sigurður ekki út fleiri ljóðabækur eftir þá auðmýkingu.
Ekki líkar Weinberger heldur neitt sérlega vel við tilraun listfræðingsins Soame Jenyns (1904–1976) sem sé að vísu nákvæmari en hinir tveir en vill samt troða inn ljóðmælanda og velur auk heldur orð sem Weinberger þykja ljót. Frægt er að sum íslensk 20. aldar skáld völdu önghljóð í stað lokhljóða af svipuðum sökum og Ólafur Jóhann Sigurðsson gerði stólpagrín að dálæti sumra þeirra á viðskeytinu -úð. Veslings Jenyns verður að fulltrúa fyrir hið draumkennda og kjánalega skáld sem hirðir lítt um nákvæma merkingu. Maður þakkar hér fyrir að Weinberger kunni ekki íslensku því að þá hefði hann eflaust sagt pabbabrandara þar sem Wei og upphrópunin ‘Ó,vei’ væru í öndvegi.
Þegar maður telur að lengra verði ekki komist í lærðum svívirðingum verður á vegi Weinbergers William nokkur McNaughton sem er líklega meiri Kínafræðingur en skáld en kann þó ekki að lesa kínversk rittákn rétt að mati Weinbergers sem kýlir hann kaldan með öðrum pabbabrandara. Ég hvet ykkur til að lesa lokaefnisgreinina vel þar sem jafnvel uppsetning ljóðsins er tekin í gegn og örstuttri gagnrýninni lýkur á orðinu „thumpety-thump“ sem ég vel að skilja sem last fremur en lof.
Ekki fellur Weinberger þó jafn illa við alla. Til dæmis er hann líkt og áður sagði í gengi með sjálfum Octavio Paz og gamli Bítnikkinn Gary Snyder (f. 1930) er í uppáhaldi, meðal annars vegna þess að hann hafi velt samhengi ljóðsins betur fyrir sér og skilji aðstæðurnar betur en hinir. Hippinn hefur auðvitað betri skilning á náttúrunni en flestir. Snyder er líka eina skáldið fyrir utan Paz —,sem fær að skrifa eftirmála að þessari útgáfu — sem fær að skýra þýðingu sína fyrir Weinberger sem virðist fallast á hana. Í lokin segir Weinberger að aldrei megi líta á þýðingu sem stökk milli orðabóka heldur þurfi að endurhugsa ljóðið og hver lestur á ljóði sé ævinlega nýr.
Bókinni fylgir eftirmáli þar sem Weinberger bregst við gagnrýni á hana líkt og geðillur bolabítur og einkum þeirri að hafa hunsað þýðingu Peter A. Boodberg (1903–1972) sem mun hafa verið helsti Kínafræðingur Berkeleyháskóla um áratuga skeið en skáld lítið, að minnsta kosti að mati Weinbergers sem líkir honum við Gerard Manley Hopkins á LSD áður en hann pabbabrandarast enn meira. Hið tilgerðarlega orð „cedule“ verður honum fóður í mikið háð og hann gætir þess vandlega að hleypa veslings Boodberg ekki í megintexta heldur halda honum í eftirmálanum. Raunar er ég að mestu sammála honum um þýðingartilraun Boodberg sem hljómar uppskafningslega. Ég er talsvert nær um þýðingar en aðallega mun ég gæta þess að þýða aldrei kínversk skáld í framtíðinni af ótta við orðasveðju Weinbergers sem er greinilega álíka harður nagli og hann lítur út fyrir að vera á myndum.