Þung byrði krúnunnar

Ég kann vel við Shakespeare í flestu formi en það er samt eitthvað alveg sérstakt við The Hollow Crown (2012 og 2016) þar sem þau leikrit skáldsins sem mörgum þykja hvað óaðgengilegust — þau sem rekja sögu Englandskonunga 14. og 15. aldar (konungasögurnar) — voru aðlöguð í besta kvikmynda- og sjónvarpsstíl með frábærum leikurum og áhrifamikilli sviðsetningu (kann ekki við að nota tuggur á borð við „veisla fyrir augað“ sem væru þó ekki ósannar). Núna í svartasta skammdeginu sammæltist ég við annan bókmenntafræðing um að sjá öll sjö leikritin (Ríkharð 2., Hinrik 4. fyrra og seinna, Hinrik 5., Hinrik 6. í þremur leikritum (en hér stytt í tvö) og Ríkharð 3.), fjögur í annað sinn. Fyrsta myndin er þegar lögð að velli á þessari stundu með aðstoð hinnar nokkurn veginn úreltu dvd-tækni (tvítugt tækið mitt hjarir enn) en ég mun ræða þau öll eftir föngum.

Leikurinn hófst á Ben Whishaw í gerði Ríkharðs 2. sem ég hafði áður séð. Fyrir alllöngu sá ég líka Derek Jacobi í sama hlutverki í hinni frægu BBC-útgáfu (frá 1978) sem fjölskylda mín eignaðist alla árið 1989. Afstaða Shakespeare og væntanlega margra undir lok 16. aldar til þessa ógæfusama konungs var flókin. Almennt var hann ekki talinn góður (jafnvel rex tyrannus) en þó var uppreisn Bolingbroke gegn honum og morðið á Ríkharði í kjölfarið almennt talið svívirðilegt eins og öll landráð. Saga hans var því kjörið dæmi um fallvaltleika valdanna og pólitískar sviptingar — og auðvitað áhugavert áhorf á tímum þegar þingmenn skipta um lið og ríkisstjórnir riða til falls. Gamla leikritið með Jacobi var reyndar eftirminnilegt þótt sviðið væri ekki jafn fjölbreytilegt en í The Hollow Crown er stigið skrefinu lengra í þá átt að gera verkið myndrænt og nýta sjónvarps- og kvikmyndatæknina til fulls.

Einna best mundi ég eftir ljósum og stundum snjóhvítum klæðnaði Ben Whishaw og hvernig honum tókst að vera í senn og til skiptis saklaus, fáfengilegur og aumkunarverður. Ríkharður 2. var einn þeirra konunga sem var grunaður um að vera þrælöfugur og Shakespeare gekk alla leið í því með tilbúnu aukapersónunum Bushy, Bagshot og Green sem voru „gæðingar“ hans og voru teknir af lífi að launum (í The Hollow Crown eru rúllandi hausar helstu tákn um valdaskiptin og harðstjórn hins nýja konungs). Þegar þættirnir voru frumsýndir árið 2012 töldu sumir enskir gagnrýnendur að reynt væri að líkja konunginum við poppkónginn ofsótta Michael Jackson, meðal annars með því að gefa honum gæluapa (sem sést að ofan). Vissulega má sjá Jackson sem harmræna fígúru og Ríkharð á barmi sinnisveikinnar þótt stundum verði ekki séð hvort hann leiki eða sé einlægur. Ekki síst þegar hann talar við sandinn á ströndinni eða þegar hann íklæðist glæsilegri brynju til þess að þruma yfir andstæðingum sínum og skjóta þeim skelk í bringu með leikþætti sem hann ræður þó ekki við að fylgja eftir. Í kjölfarið klæðist hann Jesúgervi þegar hann er neyddur til að láta af völdum (enn síðar verður hann heilagur Sebastian í þessari leikgerð) og er auðmýktur ítrekað með þeim afleiðingum að sögusamúðin snýst alveg við (ekki ósvipað og í Hrafnkels sögu). Eina svar hans og vörn er flippuð en sennilega strategísk mælgi sem Whishaw fer feiknarvel með.

Whishaw er vitaskuld leikari á pari við Burton og Olivier en þessi mynd verður örugglega eitt af því sem hans verður helst minnst fyrir — þótt Ríkharður hans sé hugsanlega ein mesta dramadrottning og grenjuskjóða kvikmyndasögunnar á eftir Gollum í Turnunum tveimur nær hann að höfða til samúðarinnar og jafnvel réttlætiskenndarinnar. Fyrir utan Whishaw eru David Suchet og Tom Hughes eftirminnilegir í hlutverki Jórvíkur-feðganna sem lentu hvor sínumegin í átökunum — einkum sá síðarnefndi þegar hann reynir að standa með konunginum þótt hann sé augsýnilega í keng af ótta. Patrick Stewart leikur forföður Lancasterættarinnar, John frá Gaunt (John Gielgud lék hann á móti Jacobi). Stewart er nýlega látinn, og hefur vitanlega verið kær heimilisvinur minn áratugum saman (ég er enn í sorg); hann hefur alltaf það sem menn kölluðu eitt sinn „pondus“. Snemma í leikritinu kallar Gaunt konunginn bróðurson sinn „landlord of England, not king“ á banabeði og sakar hann þar með um ofríki. Þetta er raunar líka svipað þema og meginefni Hrafnkels sögu (seinlæti á ögurstundu er auk heldur þema í báðum verkum) og minnir okkur á hversu mjög fyrri alda menn veltu fyrir sér konunglegum dyggðum, hlutverki konungs og takmörkum þess (líka Íslendingar). Hugmyndin um bölvun Englands í kjölfar valdaráns Bolingbroke er afar lifandi í öllum leikritunum en einna skýrast í þessu. Sú bölvun hefur væntanlega ekki verið álitin fortíðin ein á dögum Shakespeare.

Það segir sína sögu um þessa sjónvarpsgerð að ég nennti að horfa á hana í annað sinn á undan BBC-gerðinni með Derek Jacobi sem þó er afar góð líka. Ekki var hún síðri í annað sinn. Líklega er ástæðan sú að þetta er sæmilega trygg og vitsmunaleg túlkun sem samt er furðu gott „entertainment“ þótt hún sé bæði sorgleg og stundum lítt geðsleg. Þó að óneitanlega gefi allir heitu karlkyns leikararnir (ekki síst Whishaw og Hughes) þessari mynd talsvert gildi veldur samt nokkrum vonbrigðum að konum er fækkað frá upphaflegu Shakespeare-gerðinni og hlutverk þeirra smá. Hin ágæta Lindsay Duncan birtist ekki fyrr en á seinustu mínútunum í afar sterkri senu sem snýst að hluta til um sektarkennd Bolingbroke og áhrif hennar á örlög York-fjölskyldunnar. Undir lokin heitir valdaræninginn Jórsalaför til að þvo af sér sektina. Ég bíð spenntur framhaldsins.

Next
Next

Þið eigið mig ekki