Hryssingslegur valdsmaður

Ég hafði ómælda ánægju af því að kenna Hrafnkels sögu í haust ásamt Gísla sögu og Bandamanna sögu. Ég samdi nýlega grein um Hrafnkels sögu á netið og veit því flestum betur að hún er óhemju vinsæl meðal fræðimanna enda margt forvitnilegt að glíma við. Ein af ástæðum þess að ég kenndi hana ásamt hinum tveimur sögum er að þær eru allar frá síðmiðöldum að mínu mati, 14. og 15. öld. Eins eru þær allar fremur sjálfstæðar frá formreglum Íslendingasagna, meðal annars frá ættinni og kristnitökunni sem byggingarefni. Síðast en ekki síst má glöggt sjá í þeim öllum skýr einkenni dæmisagna, sterkan boðskap, ágeng höfundareinkenni og sjálfstæði frá sögulegum fróðleik.

Í Bandamanna sögu sigrar nýi maðurinn höfðingjaklíkuna en í Hrafnkels sögu er sú draumsýn borin til baka. Þvert á móti er niðurstaða hennar að hinn ættgöfugi valdsmaður hlýtur að lokum að knésetja andstæðinginn sem meðal annars er ekki jafn ófeilinn og hann. Að því leyti er hún ekki óáþekk Furstanum sem Machiavelli setti saman öld síðar. Sá spaki Flórensbúi vísaði ekkert sérlega mikið til Guðs þegar hann lýsti því hvernig höfðingjar ná og halda völdum og eins er boðskapur íslensku dæmisögunnar „Sá er svinnur sem sig kann“ (sagan er full af orðskviðum og stíll hennar ekkert sérstaklega knappur þótt stutt sé). Það reynist að lokum vera Hrafnkell þó að hann verði ekki óbarinn héraðshöfðingi á ný.

Í sögunni eru engar vísur, fáar konur, yfirnáttúrulegar verur eða ættrakningar og annars óþekktar persónur bera söguna uppi að Hrafnkatli slepptum. Þegar áhugi fræðimanna var hvað mestur á að kalla fornsögur „skáldsögur“ var hún vitaskuld nefnd til, meðal annars vegna þess að líklegt þótti að hún segði ekki allan sannleika um austfirska valdabaráttu 10. aldar. Því er ég alls ekki ósammála en spurningin er ef til vill óáhugaverð miðað við svo margt annað. Það sem við ættum frekar að spyrja okkur að er hvers vegna 15. aldar menntamaður vildi segja þessa sögu og hvaða tól tungumálsins gat viðkomandi nýtt til þess.

Next
Next

Snilldarverk og Bechdelprófið