Þið eigið mig ekki

Ég hef stundum dásamað YouTube við furðu lostna jafnaldra mína þannig að ég get þess hér að heimildarmyndir eru þar í stórum stíl og um daginn sá ég The Nomi Song (2004), kvikmynd Andrew Horn (1952–2019) um hinn skrítnasta af öllum listamönnum, Klaus Nomi. Góðvinur minn kynnti mig fyrir Nomi fyrir alllöngu (meðal annars sérstakri gerð hans á „Ding Dong the Witch is Dead“ sem næstum veldur hjónaskilnaði ef hún er leikin í heimahúsi) og ég hafði áður heyrt um myndina, en þegar mér hugkvæmdist að leita hana uppi á YouTube leið mér eins og Kólumbus með eggið — en sú saga mun raunar vera frá 1565 og sem sagt talsvert eldri en ég hélt. Þó að Klaus Nomi hafi lengi flækst um á jaðri minnar menningarvitundar vissi ég raunar ekki mikið um hann og myndin því kærkomin.

Myndin um Klaus Nomi (sem hét í raun Sperber, 1944–1983) er svolítið um New York týpur 8. áratugarins sem ég hef haft smávægileg kynni af. Nomi var kannski eitt mesta furðuverkið sem sló í gegn þar en sagan snýst um hvernig sérgáfa hans sem kontratenór gerði honum lítið gagn lengst af uns hann lenti með listaspírum sem hjálpuðu honum að gerast einhver sérkennilegasti framúrstefnulistamaður ofanverðs 9. áratugarins en ekki hafði hann þó fyrr slegið í gegn hjá þeim fáu sem þekktu hann fyrr en hann veiktist illa af eyðni sem þá var lítt þekkt og dó á hörmulegan hátt sem verður næstum eins og hluti af þessum gjörningi sem Klaus Nomi var.

Klaus Nomi var öðrum þræði furðuleg vera sem vildi að eigin sögn brúa bilið milli manns og geimveru — hann sást fyrst í sjónvarpi sem bakraddasöngvari David Bowie í laugardagsþættinum bandaríska SNL fjórum árum fyrir andlát sitt og er sennilega eini listamaðurinn sem gat stolið senunni frá Bowie – en síðan var hann líka fremur hversdagslegur og jafnvel notalegur lítill karl sem var tilbúinn að vera framúrstefnulistamaður þegar færið loksins gafst. Eins og samstarfsmaður hans Kristian Hoffman sagði í myndinni snerist öll list Nomi um að vera á skjön á stórkostlegan hátt. Viðmælendur Horn í myndinni vita varla hvernig þeir eiga að lýsa honum enda er sjón sögu ríkari. Það hvarflaði að mér að Nomi brúi líka bilið milli raunverulegra sönghæfileika og afar fágaðrar konseptlistar.

Blómaskeið Klaus Nomi varð því stutt en eitt sætt augnablik var hann það nýjasta nýja í New York og kannski sá eini sem gat komið öllum framúrstefnulistaspírunum á óvart með því að vera sjálfum sér trúr. Engin leið er að vita hversu vel atriði hans hefðu elst eða hversu vel hann hefði náð að endurnýja sig sem listamaður en það lá ekki fyrir þeim, hann dó að lokum einn og yfirgefinn af öllum nýju vinunum en í staðinn varð fljótlega til költ sem enn lifir góðu lífi.

Next
Next

Martraðarbókmenntir