Æskudrifinn hótelfarsi
Sumir sem ég þekki segjast ekki hafa áhuga á skálduðum sögum, aðeins heimildarmyndum. Ég tæki seint undir þetta en sannar sögur hafa visst forskot sem sneið úr raunveruleikanum og síður háðar mannlegu ímyndunarafli. Ég man þegar einn fremsti höfundur Íslendinga samdi sögu í hinum knappasta Sturlungustíl en illu heilli naut hún ekki þess að vera sönn saga og því erfitt fyrir lesandann (mig) að fá sama áhuga þegar stíllinn var jafn látlaus og raun bar vitni. Yfirleitt hef ég verið iðinn við skáldsagnalestur en í vor var ákveðið skeið þar sem ég hreinlega gat ekkert skáldað lesið eða einu sinni horft á og ég velti jafnvel fyrir mér hvort leiði ellinnar sækti nú að mér af vaxandi hörku.
Að lokum reyndi ég á sjálfan mig með því að horfa á spænsku þáttaröðina Oasis á Netflix, átta 45 mínútna þætti á einni helgi. Þáttunum var lýst sem spænskri gerð hins frábæra Hvíta lótusblóms, líklega vegna þess að sögusviðið er álíka. Þá eru hinir sameiginlegu þættir aftur á móti upp taldir. Það sem gefur hótelepík Mike White gildi eru fagurfræðileg og heimspekileg dýpt ásamt lunknum og launfyndnum samræðum. Oasis kemur hins vegar ekkert á óvart að því leyti.
Þáttaröðin snýst um mannrán og glæpamál sem ungt par ákveður að leysa, gestur og starfsmaður. Í fyrsta þættinum er eitthvað rætt um stéttamun en það nær þó ekki einu sinni sömu hæðum og í Karatedrengnum forðum daga og eftir það er sagan svolítið eins og glæpasögur fyrir unglinga í gamla daga (þykist muna eftir táningum sem leystu gátu um gimsteinarán á skíðahóteli). Rannsóknaraðferð parsins snýst um að hlaupa út um allt og fela sig í blómabeðum, kjöllurum og skúmaskotum á frekar farsakenndan hátt en þó án allrar glettni.
Alls engin rökhugsun fer fram um glæpinn. Kannski er þetta fínt efni fyrir 10-12 ára en ég óx upp úr því þegar ég uppgötvaði Agöthu Christie forðum daga. Eins á hver einasta persóna í sápuóperulegum vanda tengdum tengslum við annað fólk í anda Elite en lengi vel var þó ákveðinn kraftur í þeirri syrpu sem vantaði hér. Það eina sem þátturinn hefur sér til ágætis eru fallegir leikarar sem tala hið fagra tungumál spænsku. Ég væri til að sjá þau öll aftur í sögu sem eitthvert vit væri í.
Besta sagan var aukaflétta um ríka stúlku sem hrífst af golfkennara sínum og ef hún hefði fengið meira rými hefði hún ef til vill verið áhorfanleg en flestar aðrar fléttur eru aðallega kjánalegar, þó einkum sú sem glæpurinn reyndist snúast um. Ég er þó sannarlega ekki laus við hótelablæti, er alræmdur og ákafur aðdáandi Hvíta lótussins og horfði jafnvel á spennuþættina Harper’s Island um árið sem gengu kannski ekki vel upp með raunsærri túlkun en firnavel með hryllingsmyndalógík þar sem aðalatriðið eru þau hughrif sem hin hræðilegu atriði skapa.
Oasis reyndist sem sagt engin vin í eyðimörk sagnaþreytu minnar en sannfærði mig þó um að ég sé kannski ekki sjálfur vandamálið heldur vanti mig aðeins að finna sögur við hæfi.