Martraðarbókmenntir

Vinkona mín gladdi mig í sumar með því að lána mér tvær bækur eftir Sebastian Fitzek (f. 1971) sem er þýskur tryllismeistari og var það vel þegið fyrir mann sem á stundum erfitt að lesa og hefur áhyggjur af vaxandi hljóðvarpahlustun og elli. Fitzek skrifar bækur sem er varla hægt að leggja frá sér og er iðulega líkt við sjálfan Harlan Coben sem raunar var vitnað í utan á því eintaki sem ég las. Coben er frægur fyrir sínar rauðu síldir og óvænta snúninga og Fitzek er sannarlega jafnoki hans að því leyti. Stíll hans er líka afar léttur, kaflar og setningar með stysta móti. Eftir fyrstu 20 síðurnar ákvað ég að Fitzek væri enginn greiði gerður með því að lesa hann sem raunsæishöfund og hann segir enda sjálfur í viðtölum að það sé ekki hans ætlan.

Á hinn bóginn vefst grimmdin í bókunum svolítið fyrir mér og eins hversu persónurnar virðast allar skapaðar úr sama pappanum þannig að varla er um persónusköpun að ræða. Að sumu leyti er Fitzek eins og James Patterson sem skrifar bækur fyrir fólk sem les ekki bækur. Þær eru fátt annað en flétta og samræður, kvikmyndahandrit eiginlega. Fyrri bókin sem ég las hét Seat 7a á ensku en mun heita Flugangst á frummálinu. Ég er sjálfur ekkert sérstaklega ferðaglaður og ætti að hafa samúð með hinni flughræddu aðalpersónu en ég gat samt ekkert tengt við hann. Sannarlega vantar ekki óvænta snúninga í bókina en mér var eiginlega sama þegar þeir fóru að dynja á manni undir lokin; þótt sagan eigi ekki að vera raunsæ fannst mér fléttan eiginlega einum of fáránleg, slíkar fléttur þurfa raunsæjar persónur eða vera að minnsta kosti skemmtilegar, eins og hin lítt raunsæislega Con Air sem einnig gerist í flugi. Mér fannst bókin eiginlega aðallega virka sem lýsing á martröð og ekki slæm sem slík en í sannri martröð leysist vitaskuld aldrei úr. málinu; maður rýkur einfaldlega upp með andfælum.

Walk Me Home (Der Heimweg á frummálinu) höfðaði meira til mín og ég hafði enn áhuga þegar upp komst um allt og á skullu hin óvæntu endalok sem gerðu fléttuna líka aðeins trúverðugri. Aðalpersónan Jules hélt líka áhuganum betur en flughræddi sálfræðingurinn. Ég sé alveg að Coben-aðdáendur geti haft gaman af Fitzek en kannski er líf mitt komið of nálægt óhjákvæmilegum lokaþættinum til að ég þurfi á trylli að halda til að finna fyrir lífsháska. Ég fer ekki heldur í fjallaferðir eins og jafnaldrar mínir þar sem spennan um hvort ég komist lífs úr deginum nægir mér alveg eins og er (sjá fyrri skrif mín um þægindarammann).

Fyrir utan Coben hefur Fitzek nefnt sjálfan Stephen King sem áhrifavald en miðað við Fitzek er King nánast eins og Henry James þegar kemur að stíl og lýsingagleði. Metsalan hefur þó ekki aðeins tryggt Fitzek fjárhagslegt öryggi heldur líka slatta af verðlaunum af því að í nútímanum er árangur höfundar einkum mældur í sölutölum sem gerir líf bókmenntafólks stundum nánast óbærilegt. Ég sé ekki eftir helginni sem fór í Fitzek en ekki get ég þó litið á hann sem minn tebolla.

Next
Next

Hryssingslegur valdsmaður