Þessa- og annarsheimsferðir andfætlings

Það hefur aldrei verið ætlan mín að skrifa hér um allt sem ég les eða sé eða heyri en einna helst ef höfundar hafa verið svo vænir að gefa mér bækur sínar með góðum orðum og það á við um ástralskan vin minn David Lovegrove sem bæði er einlægur aðdáandi íslenskra fornsagna (og bókasafnari) og lesandi minna eigin fræðiverka þar um, einkum þessarar bókar. Lovegrove sagði mér eitt sinn að honum fyndist sérstaklega skynsamlegt af mér að nálgast efnið með útgangspunktinum í mannlegri reynslu án þess að eyða orkunni í að efast um hana eða gera lítið úr fólki sem sá eitthvað yfirnáttúrulegt. Mér féll sú umsögn hans vel þar sem þetta var einmitt mín ætlan.

Í kjölfarið sendi Lovegrove mér sína eigin bók sem sjá má hér að ofan. Bókin er óvenjuleg að því leyti að Lovegrove er arftaki Erich von Däniken og ýmissa sporgöngumanna hans og hefur mestan áhuga á að tengslum miðaldagoðvera í ritum Snorra og annarra við geimverur eða aðrar yfirnáttúrulegar verur. Efnið hefði kannski þótt úrelt fyrir nokkrum árum en núna hefur áhugi á geimverum og annarsheimstengslum aukist til muna eins og Lovegrove fjallar sjálfur um í inngangi bókarinnar. Helstu andstæðingar Lovegrove í fræðaheiminum eru þeir fræðimenn seinustu hálfrar aldar sem telja Snorra-Eddu afar kristilegt verk og ég gæti talist einn þeirra þó að mér finnist of einfeldingslegt að skipta hugmyndum miðaldamanna í heiðnar og kristnar (sem gæti verið ástæðan fyrir að Lovegrove fellur bók mín vel í geð). Ein ástæða þess að hann hefur fengið þennan áhuga er hans eigin yfirnáttúrlega reynsla sem hann ræðir aðeins í bókinni og hún er skemmtileg aflestrar einmitt vegna þess að hún er að hálfu leyti ferðasaga í anda Bill Bryson og auðvitað skaðar ekki að ég kem þar sjálfur við sögu. Bók David Lovegrove er þannig prýðilegur lestur burtséð frá því hvort fólk trúir honum eða ekki og ritið er í öllu falli merkileg heimild um fræðimennsku þar sem geimverur eru ekki útilokaðar því að hann leggur sannarlega spilin á borðið frá upphafi til enda.

Next
Next

Ekki aðeins úr