Upplýsingaóreiða er áhugavert hugtak sem mér hefur einkum sýnst notað um fréttir sem draga taum Rússa og annarra annarsflokksríkja fremur en Evrópusambandsins eða Bandaríkjanna. Þar sem ég hef ekki verið markhópur frétta Ríkisútvarpsins seinustu 40 árin eða svo get ég ekki gefið mikið fyrir þetta hugtak eða hugmyndina um traustar eða áreiðanlegar fréttir yfirleitt og raunar á það við um þekkingu almennt. Ég er alinn upp eins og flestir í Vesturheimi við þá söguskoðun að Wrightbræðurnir hafi fundið upp flugið en hafði aldrei heyrt um Alberto Santos-Dumont fyrr en ég kynntist flugelskum Brasilíumanni. En fyrir rúmri öld var Santos-Dumont einn af frægustu mönnum í heimi, meðal annars fyrir að vera einn af upphafsmönnum flugsins. Svo hentaði ekki lengur að muna eftir honum og í kjölfarið geta lesendur mínir reynt að rifja upp hversu margar fréttir þeir hafa heyrt frá Brasilíu seinustu áratugi eða hvað þeir vita yfirleitt um þetta land þar sem 213 milljón manns búa.
Santos-Dumont kleif Mont Blanc á unga aldri og fékk í kjölfarið ógurlegan áhuga á upphæðum. Hann erfði mikinn auð og nýtti hann til að gerast uppfinningamaður. Fyrst hafði hann einkum áhuga á loftbelgjaflugi en síðar loftförum af því tagi sem við kennum við Zeppelin og að lokum þyrlum og svifflugvélum. Árið 1905 hannaði hann flugvélina Ránfuglinn (Oiseau de Proie) og var í upphafi 20. aldar einn fremsti flugvélahönnuður heims. Því miður var hann svo ólánsamur að fá MS-sjúkdóminn á unga aldri og yfirgaf þá flugið og helgaði sig stjörnufræði. Eitt af því sem gerði hann fráhverfan flugvélum var mikil notkun þeirra í heimsstyrjöldinni fyrri. Það hafði aldrei hvarflað að Santos-Dumont að jafn fögur uppfinning og flugvél yrði nýtt í hryðjuverk styrjaldar. Eftir stríð sendi hann Þjóðabandalaginu áskorun um að hætta notkun flugvéla í stríði. Allir vita auðvitað hvernig því var tekið.
Núna löngu síðar er Santos-Dumont ekki síst minnst sem vinar úrsmiðarins Cartier sem nefndi úr eftir honum og hefur nafn þess verið endurvakið í hönnunarlínu á 21. öld. Brasilíumenn gerðu um hann sjónvarpsþætti nýlega sem ég hef enn ekki séð og hans var vitaskuld minnst á opnunarhátíð ólympíuleikanna í Rio árið 2016. Santos-Dumont var aldrei við kvenmann kenndur og hefur verið bendlaður við hinn fræga teiknara Goursat en sitt sýnist hverjum um það.