Handritið sem Leigh dó frá
Flestir eru sammála um að The Empire Strikes Back (1980) sé í senn besta kvikmyndin um Stjörnustríð og auk heldur sjaldgæft dæmi um að framhaldsmynd sé betri en upphafið þó að manni hafi ekki endilega fundist það á sínum tíma (ég þykist hafa séð hana fyrst í Nýja bíó í janúar 1982). Færri vita að fyrsta handrit kvikmyndarinnar var samið af Leigh Brackett (1915–1978), reyndum fantasíu- og vísindaskáldsöguhöfundi sem stundum var kölluð „drottning geimóperunnar“ en Brackett andaðist þó áður en tökur á myndinni hófust og hið endanlega handrit er því eignað bæði henni og Lawrence Kasdan (f. 1949). Unnu þau Hugoverölaunin árið 1981 fyrir besta dramatíska vísindaskáldsögu- eða fantasíuhandritið.
Handritið er víða að finna á netinu, bæði það upphaflega og hið endanlega. Ýmis eftirminnilegustu tilsvörin (t..d um eyru gundarksins eða nerfhirðinn) eru ekki í upphaflegu handriti Bracketts en þar má þó finna eitt eftirminnilegasta atriði kvikmyndarinnar, þegar Lando býður hetjum okkar til málsverðar þar sem sjálfur hinn illi Svarthöfði reynist sitja við borðsendann. Eða eins og Brackett orðaði það „rising in black enormous menace from the seat of the head of the table“ eins og við sáum síðan ölll í kvikmyndinni á sínum tíma. Leigh vann auðvitað náið með George Lucas sem var ótvírætt hugmyndasmiðurinn á bak við Stjörnustríð en var ekki endilega best fallinn til að skrifa sjálfur handritið eða leikstýra og því mótast handrit hennar mjög af eldri hugmyndum hans sem hann endurskoðaði svo áður en að tökum kom. Einkum var áberandi þráður um hinn valdamikla Ovan Marekal, fósturföður Han Solo sem átti að leika lykilhlutverk í sögunni. Því var síðan öllu hafnað og þar með drjúgum hluta af handriti Brackett.
Samt er rétt að minnast oftar Leigh Brackett sem jafnvel margir helstu aðdáendur Stjörnustríðs kannast ekki við. Ásamt Marciu Lucas og Carrie Fisher er hún sennilega sú kona sem mest áhrif hafði á Stjörnustríð þegar þessi ævintýraheimur var í sköpun og gerði það e.t.v. að verkum að ekki aðeins drengir hafa áhuga á þessum kvikmyndum þótt drengjamiðaðar séu að einhverju leyti.