Þó að Ríkharður 2. sé óneitanlega stórkostlegt leikrit er söguefnið líka svo augljóslega gott að það þarf ef til vill ekki að koma á óvart að Shakespeare hafi gert úr því gott verk. Öðru máli gegnir um leikritin tvö um Hinrik 4. (Henry IV Part I og Henry IV Part II) þar sem Shakespeare kryddaði ævi þessa tiltölulega farsæla konungs með því að búa til kolbítssögu um hinn sigursælasta af öllum enskum konungum, HInrik 5. (1386–1422) og nær þannig áhugaverðum kontrapunkti milli hefðbundinna konunglegra viðfangsefna Hinriks 4. og lífi sonarins meðal smáglæpmanna af alþýðustétt sem heilla hann á tímabili jafnvel umfram metorð þau og heiður sem fylgja föðurnum. Síðar nýtti Gus Van Sant sér þetta í eigin nýbylgjumynd um eiturlyfjaneitendur og vændiskarla í Portland í Oregon og gekk furðu vel upp þar sem kjarni sögunnar í Hinrik 4. er hvernig æskumaður af göfugum ættum „brýst til fátæktar“ og tekur upp bóhemalífstíl sem hann snýr þó að lokum baki við til að taka við krúnunni. Mikilvægasti maðurinn í þessari sögu auk konungsins og prinsins er hinn drykkfelldi og siðspillti riddari John Falstaff sem virðist einnig hafa spillt prinsinum unga tímabundið með ófeilnum sjarma sínum. Að einhverju leyti er hinn ungi Hinrik þó eins konar prins í dulargervi, algengt ævintýraminni (K1812 í kerfi Stith Thompson) sem líka þekkist í íslenskum miðaldaritum.
Eftirminnilegasta atriðið í fyrra leikritinu um Hinrik 4. (og reyndar endurtekið í kvikmynd Van Sant) er þegar hinn ungi prins og vinur hans Poins klæðast dulargervi og ræna Falstaff og félaga hans Bardolph og Peto sem áður höfðu rænt saklausa kaupmenn og er þetta vel skipulagða rán hugsað sem hrekkur eingöngu til þess ætlaður að fá Falstaff til að segja frá atvikinu með mikilli skreytni. Falstaff stendur undir væntingum og bætir stöðugt við árásarmönnum þegar hann fer með söguna (Tolkien tók þetta upp í Hobbitanum). Í kjölfarið halda þeir félagarnir eins konar karnival á kránni þar sem þeir leika prinsinn og konunginn á víxl við almennan hlátur hinna ölhreifu. Í The Hollow Crown sem ég er að horfa á þessar vikurnar er þetta atriði (fyrsti þriðjungurinn af sjónvarpsmyndinni) sérstaklega vel útfært en þar leika Tom Hiddleston og David Dawson (að ofan) þá prinsinn og Poins en Simon Russell Beale fer með hlutverk Falstaffs. Þessi átök eru heldur áhugaverðari fyrir mig en uppreisn aðalsmannsins Hotspur (sonar hins gamla bandamanns konungsins, Northumberland) gegn Hinrik 4. sjálfum. Jafnvel þótt kona Hotspur sé leikin af sjálfri Lady Mary (Michelle Dockery) úr Downton Abbey og þrátt fyrir fagran söng á velsku en meðal stuðningsmanna Hotspurs er hinn ungi Mortimer (leikinn af hinum fagra Harry Lloyd) sem á ofurfagra konu en hvorugt þeir skilur tungumál hins. Þetta fannst mér óneitanlega fallegt og skil þetta kannski flestum betur.
Þó að leikritin tvö séu kennd við Hinrik 4. er sonur hans, Hal, síðar Hinrik 5., eiginlega aðalpersónan en Jeremy Irons gerir þó sitt besta í hlutverki HInriks 4. á efri árum og er ófær um að vera ekki mikill á velli. Kóngurinn og uppreisnarmennirnir Hotspur og Mortimer eiga því miður lítinn séns í atriðin sem gerast á 15. aldar kránni meðal þjófa, rummunga og drykkjumanna í eins konar endalausu karnivali — Halldór Laxness notaði þetta tveggja heima form líka prýðisvel í Atómstöðinni. Tom Hiddleston gerir hlutverk hins óefnilega prins mjög að sínu (fyrir utan að hann hermir prýðilega eftir Jeremy Irons að. leika Hinrik 4.) og fær okkur til að trúa á ást prinsins til uppeldisföðurins Falstaffs sem hann svíkur síðan í seinna leikritinu sem ég mun fjalla um síðar. Í lok þess fyrra er hann farinn að efast um Falstaff en þó enn ekki vin sinn Poins sem er aðeins fínni pappír en restin af liðinu á kránni. Sjálfur held ég mest upp á Poins í þessari gerð (enda David Dawson frábær leikari sem gerir furðu mikið með einföldum svipbrigðum) en mundi varla eftir þessari persónu úr eldri BBC-gerðinni þar sem Anthony Quayle lék Falstaff eftirminnilega. Dawson og Hiddleston tekst mun betur en fyrri leikurum að koma sterkum böndum þeirra til skila.
Ég veit ekki hvort leðurjakki Tom Hiddlestons í The Hollow Crown er 15. aldar flík (hef mínar efasemdir) en sannarlega gaf hann þessari Hinrikstvennu aukið gildi og hefði átt að fá verðlaun fyrir yfirburða frammistöðu í aukahlutverki. Þá eru drulla og snjór vel nýtt í The Hollow Crown gerðinni af fyrra leikritinu um Hinrik 4. og langt bardagaatriði í lokin er í besta Peter Jackson stíl en þó ívið innihaldsríkara og kallast á við hugleiðingar Falstaffs um hvað heiður sé eiginlega. Þar sem þættirnir eru 14 ára gamlir er ekkert glímt við alla fitusmánunina í verkinu enda kannski enginn hægðarleikur. Fyrra leikritið þarf að sýna okkur innileikann milli prinsins og hins ruddalega Falstaffs en einnig undirbyggja sinnaskipti prinsins þegar hann yfirgefur Falstaff til að lúta vilja föðurins sem hann hefur áður hæðst að. Þau eru ekki auðtúlkanleg en Hiddleston er góður að tjá efa og óstyrk hulin undir mannalátum prinsins sem á endanum svíkur allt og alla. EIns og í öllum þessum sjónvarpsgerðum er þátturinn bæði sviðsettur eftirminnilega og úrvalsleikari í hverju rúmi. Þættirnir fá áfram mín bestu meðmæli.