Fjórfaldur dýrlingur í Feneyjum

Eins og ég hef oft fjallað um er myndlist fyrri alda full af hinu og þessu sem er ekki endilega skiljanlegt innan í þröngum ramma hugsunar nútímamannsins eða yfirleitt með rökræðuhugsun. Þetta á meðal annars við um hvernig dýrlingar kaþólskunnar þróuðust í myndhefðinni á alls konar hátt sem fellur ekki endilega að sjálfri guðfræðinni (en rúmast þó samt undarlega innan hennar). Nýlega flutti nýja stórstjarnan Guitarricadelafuente (sem er vitaskuld listamannsafn; hann heitir Álvaro Lafuente Calvo) sem allir á Spáni og víðar eru nú að tala um lag sitt ‘La Nieve’ í gervi heilags Sebastian á verðlaunahátíð (sjá að ofan) en hefð er fyrir því að sá afar vinsæli dýrlingur (líklega uppi á 3. öld) sé afar léttklæddur á miðalda- og endurreisnarmálverkum sem sýndu endalok hans skotinn af örvum bundinn við staur. Þegar ég fór til Feneyja í nóvember 2019 fór ég þar á safn og sá alla þá Sebastiana sem fylgja þessari grein (tók myndirnar á staðnum) og gat ekki annað en hugsað um fyrirsæturnar vegna þess að í öllum þessum tilvikum hefur listamaðurinn fangað venjulegu og jafnvel banölu manneskjuna sem sat fyrir en ekki aðeins táknmyndina helgu.

Það á til að mynda við um hinn stóíska varaþunna unga dýrling að ofan í altarismynd eftir 15. aldar málarann Giovanni Bellini. Það dettur ekki og drýpur af honum en ekki endilega vegna hins kristilega trúarstyrks heldur sé ég í honum þóttafullan svip ungs manns sem finnst Bellini ekki borga sér alveg nóg fyrir að standa svona lengi kyrr í lendaklæðinu einu. Auðvitað á hann ekki að brosa eða engjast af sársauka en þessi Sebastian er uppfullur af einhverju allt öðru sem mér dettur í hug að kalla leiða eða jafnvel skeytingarleysi. Þessar örvar og jafnvel píslarvættið sjálft koma honum ekki við.

Þessi sami Bellini gerði líka annan aðeins minna frægan en mun þýðari og afar værukæran bítlahærðan Sebastian sem er næstum sposkur á svip enda umkringdur prelátum, munkum og hljóðfæraleikurum. Þessari 15. aldar fyrirsætu hefur ekki einu sinni leiðst neitt sérstaklega eða kannski var hann einn þeirra sem er svo heppinn að fæðast með sposkan svip og ferðast um tilvistina með hann. Kannski er hann að fara að dotta.

Ekki man ég hvort Bellini eða einhver annar gerði þennan státna, karlmannlega og sæmilega fótstóra heilagan Sebastian að ofan líka en hann er sennilega hvorki að deyja úr leiðindum eða er skemmt, aðallega er hann hugsi yfir eigin örlögum eða kannski að velta fyrir sér hvernig í ósköpunum málarinn vilji að hann sé á svipinn og hvað hann fái greitt fyrir. Hrokkið hár er greinilega komið í tísku þarna því að fornir dýrlingar voru gjarnan uppfærðir til samtímaviðmiða.

Hinn örlítið yngri Giovanni Mansueti er í nokkru uppáhaldi hjá mér því að þar er heilagur Sebastian innan um dýrlinga og af svip fyrirsætunnar sem enn er með vott af barnakinnum má ráða að þessum stráksa finnist hann hafa dregið stysta stráið þar sem félagar hans fá að klæða sig í töff búninga og gjóa augunum þokkafullt á málarann en hann einn er klæddur í smávaxinn bláan borða og starir hálfmóðgaður í fjarskann.

Next
Next

Pólskipti samsæriskenninga