Keiko allur

Í síðasta mánuði andaðist japanski spennasagnahöfundurinn Keiko Higashino og ég tók eftir því vegna þess að nú er ég kominn á þann aldur og þá stærð bókasafns að bækur sem rata á heimilið yfirgefa það iðurlega innan árs en af einhverjum ástæðum hélt ég í bók Higashino, hinn grunaði hr. X. Þess vegna langaði mig að skrifa aðeins um hana og líka vegna þess að ég hef nýlega verið frekar gagnrýninn (sumir segðu neikvæður) á bækur sem ég hef lesið, sumt af því mun ekki rata á þessari síðu til að ergja ykkur lesendur ekki enda vill enginn vera gamall gremjukarl (þó að þjóðin hafi greinilega engar áhyggjur af því að gamlir gremjukarlar skrifi 98% af greinum fyrir komandi þjóðaratkvæðagreiðslu eins og árið sé 1926). Einn höfund gagnrýndi ég fyrir pappapersónur og Pattersonstíl en öðru máli gegnir um hinn snjalla Keiko Higashino. Bækur hans eru bæði vel skrifaðar og ekki aðeins með óvænta snúninga heldur líka vel mótaðar persónur sem lesendum stendur ekki á sama um. Þegar ég las bókina um hr. X var ég þannig við það að ganga af göflunum vegna þess að ég skildi ekki hvernig morðið hafði verið framið en aðallega var samt auðvelt að lifa sig inn í líf lykilpersónanna fimm. Þar fyrir utan var sögusviðið vel mótað og eftirminnilegt og bókin náði því þannig að fara með mig í ferðalag af því tagi sem lesendur hafa lengi sóst eftir með skáldsagnaletri.

Núna þegar Higashino er allur hvet ég því vini og kunningja til að gefa mér meira eftir hann um næstu jól eða afmæli; mig langar að lesa meiri Keiko. Ég hef talsvert skrifað um ýmsar tegundir bóka og því vita allir sem lesa þessa síðu að vel heppnaðar afþreyingarbækur geta að mínu mati verið ívið betri bókmenntir en misheppnaðar framúrstefnubækur. Það breytir því auðvitað ekki að margt afþreyingarefni pirrar mig vegna þess að það stendur ekki styrkum fótum í tungumálinu eða bókmenntahefðinni. Keiko Higashino heitinn fetaði hins vegar hið vandrataða einstígi afþreyingar og bókmennta af mikilli fimi. Það er eftirsjá af slíkum höfundum en á hinn bóginn á ég enn tugi ólesinna bóka eftir hann og er jafnvel búinn að finna lista á netinu um þær sem bestar þykja.

Next
Next

Barn Rosemary