Lífið er bassatónn

Ég var svo heppinn í fyrra að hitta bandaríska ljóðskáldið Paul Kane (f. 1950) á kaffihúsi utan miðbæjarins, mann sem lengi kenndi við hinn þekkta Vassarháskóla og í vor komst bók hans Earth, Air, Water, Fire (2022) mér í hendur, 113. eintakið. Þetta er texti sem tengdist hljóðverki írska listamannsins Katie O’Looney en stendur samt prýðisvel stök sem ljóðabók. Kane og O’Looney hafa unnið saman áður en hann skiptir tíma sínum milli New York og Ástralíu og er mikils metinn meðal suðurhvelsbúa.

Kane hefur þótt íhugult skáld. Málnotkun hans er íburðarlaus og stundum lítill munur á ljóðum hans og lausamálstexta. Ég birti myndir af nokkrum stöðum sem ýttu sérstaklega við mér, meðal annars þegar hann kallar ljóðið „the most useless art“ en sú athugun er falin í dularfullri ósagðri sögu um vináttu sem lauk og hugmyndina um betri og verri skáld. Ljóðabókin er merkilega sjálfsævisöguleg en þó ekki á opinskáan hátt heldur er eins og lífið sé bassatónn í hugsuninni um frumefnin.

Kane er meistari útúrdúranna og ræðir það sjálfur þegar hann talar um hvernig eldur verður til og inn í það blandast útúrdúr um karla í fjandsamlegum básum (hostile cubicles). Mér kom í hug hversu mjög einföld ljóðlist nútímans snýst um að stefna saman tvö orðum sem sjaldan eiga samleið en auðvitað þarf það að vera vitrænt til að koma huga lesandans á hræringu og Kane stenst það próf.

Málverk sem Kane hefur séð (en ég þarf að leita uppi) koma við sögu ásamt heimspekingum í vangaveltum Kane um eldinn. Bragurinn þróast og breytist í bókinni eins og í ljóðum Jónasar. Það þótti mér áhugavert þegar um er að ræða ljóð samin til flutnings í hljóðverki. Bragur er fyrst og fremst hljómur þótt á okkar dögum tíðkist að túlka hann líka myndrænt á síðum bóka.

MIg minnir að ég hafi haft góð orð um að kynna mér ljóð Paul Kane þegar ég hitti hann og það gladdi mig þegar það gerðist loks — „goðin hefna eigi alls þegar“ segir í Njálu og það á í æ ríkara mæli við um dugnað minn. En söguhetjan í þeirri helstu bók okkar komst líka þótt seint færi.

Next
Next

Ágengar bakraddir