Ekki getur maður annað en glaðst innilega þegar höfundar sem maður hefur lengi haft mikið álit á eru í essinu sínu og nú nýt ég þeirrar ánægju tvöfaldrar og talsverður skyldleiki milli efnisvals verkanna sem bæði eru góð og sennilega væru kjörið námsefni fyrir ögrandi háskólanámskeið um sveitina í nútímabókmenntum, einmitt vegna þess að á sinn hátt gætu þau varla verið ólíkari. Skáldsaga Hermanns Stefánssonar Sauðburður er í mínum huga sígilt verk, stutt, áleitin, greinandi, kaldhæðin og grimm en samt afar mennsk og kærleiksrík saga um rithöfund sem verður fyrir því láni að missa listamannalaun og halda aftur til náttúrunnar. Þar eyðir hann mánuði í íslenskum sveitabæ sem hann nefnir Gröf og virðist eigi fjarri Húsavík ásamt þeim Sigga, Arnóri og Elínóru. Á þessu ólíklega sviði tekur hann þátt í sérkennilegu afbrigði af forn-grískum harmleik.
Einhvern veginn gat ég ekki annað en hugsað um The Ballad of the Sad Cafe þegar ég var að lesa um Elínóru, Arnór og Sigga. Þetta eru stórkostlegar persónur og hálfu áleitnari þar sem manni finnst að þau hljóti að vera til í raun. En kannski er það fyrst og fremst sérstakur, einfaldur og nákvæmur stíll Hermanns sem tengir saman blábunu úr munni Arnórs og ískyggilega blá augu hans. Ærnar á bænum heita ýmist Búbót eða Lady Gaga. Höfundur lærir ný orð eins og eyglótt og gritta. Allan tímann vofir yfir honum Damóklesarsverð sem lesandi fær sterka tilfinningu fyrir. Mér varð ítrekað hugsað til frægs málverks eftir Grant Wood og hvernig orðið „gotneskt“ hefur verið ofnotað í íslenskri bókmenntafræði seinustu 40 ára. En það er sérstök kennd í þessari sögu sem er sögð fremur ólínulega í frjálsu formi og gullkorn á hverri síðu. Orð eru dýr í þessu verki og dýr eru orð. Líklega er fátt íslenskara en sauðburður og Hermann dregur fram goðsögulega en jafnframt hrollvekjandi vídd hans. Tilvitnun á forsíðu bókarinnar er fjarri því að vera hefðbundið skrum bóksölunnar því að mér fannst þetta vel gæti verið bók ársins þegar ég las hana nú í þriðja sinn og jafnvel gott betur.