Hvað er þessi síða?

Það má teljast sorglegur skortur á menningarlæsi að stofna síðu eins og þessa á þeim tímum þar sem fólk heldur sig að mestu á samfélagsmiðlunum að leita efnis. Kannski ekki síður að vilja ræða bókmenntir og listir út frá öðrum sjónarmiðum en peningum, persónum eða prumpinu úr fréttasíbyljunni. Þegar ég skrifaði fyrst á netið fann ég fyrir stigveldi menningarinnar sem á þeim dögum kvað upp úr um að ekkert efni á netinu gæti hugsanlega haft gildi en það fælist þá einkum í því að vera „hrátt“ (=ekki á sæmilegri íslensku). Þegar ég sneri aftur á „bloggið“ hugsaði ég mér að hafa þessa síðu póstmóderníska þannig að hún fjallaði í senn um minn eigin bókmenntaáhuga og æviþætti og um þær bókmenntir og listir sem mér þætti ástæða til að ræða. Stundum hefur mér liðið eins og annálaritara og afsökunin fyrir að tjá mig yfirleitt hefur alltaf veirð sú að lítið efni á íslensku sé til á netinu um flest það sem ég vek máls á.

Auðvitað hljóta slíkir annálar fyrst og fremst að hafa svipað gildi og bútasaumsteppi þar sem heildin er fyrst og fremst sýnileg úr fjarska og væntanlega finnst flest efni á síðunni einungis með netleit. Sem betur fer rata margir hingað einmitt með slíkri leit og verða vonandi einhverju nær um eitthvað þó að í dagsins önn viti ég minnst um hvað það ætti að vera. Ég er sem betur fer bjartsýnn að eðlisfari og trúi því að lista- og bókmenntaáhugi sé varanlegri en freyðandi samfélagsmiðlaumræðan sem ég dró mig í hlé frá fyrir löngu. Ef ég lifi og borga verði síðan að lokum gagnleg heimild um það sem fæstir fíla.

Next
Next

Megas allur