Gyrðir í Glerhúsinu
Enn stendur yfir sýning Gyrðis Elíassonar í Glerhúsinu á Vesturgötu 33b (gallerí Kristínar Ómarsdóttur) og ástæða er til að hvetja alla sem vettlingi geta valdið og hafa fótaferð til að sjá hana. Ég leit við á frumsýningunni þar sem mætt var mikil fjöld listamanna og menningarlega sinnaðs fólks. Þar sem ég er klausturfóbískur var ég heppinn að koma snemma, áður en galleríið fylltist. Ég fékk að mynda málverkin þó að þær myndir veiti aðeins daufa hugmynd um þær.
Eins og fyrr hlýtur áhorfandinn að dást að dugnaði Gyrðis en um leið má sjá þróun í list hans og litanotkun. Í næsta Andvara (2026) birtist grein sem fjallar einmitt nánar um myndlist Gyrðis en ekki kann ritstjórinn við að notfæra sér aðstöðuna til að stela úr henni. Ég læt þess þó getið að sjá má merkilega fagurfræði úr verkunum og ekki síst sambandi þeirra við náttúruna sem einnig vottar fyrir í prósaverkum Gyrðis.
Sjálfur fjárfesti ég í verki eftir Gyrði á sínum tíma og er nú svo heppinn að eiga tvö. Það er mjög margt á nýju sýningunni sem heillar mig en þar sem ég er sósíalisti vil ég gefa lesendum mínum tækifæri til að fara og kaupa áður en ég fer aftur. Myndirnar hér sýna fjölbreytnina ágætlega. Það er líka eitthvað heillandi við dugnað þessa afkastamikla listamanns sem mun aðeins auka sinn orðstír þegar fram líða stundir.