Fjölhæf listakona

Glæsileg bók um listakonuna Drífu Viðar (1920–1971) kom út á jólaföstu og hafði ég sjálfur stutt fyrirfram við verkið á söfnunarsíðu eins og eflaust margir aðrir. Ekki var það einungis vegna fjölskyldutengsla heldur vissi ég að Drífa hefði verið rithöfundur, myndlistarmaður og gagnrýnandi en samt vissi ég fjarska lítið um verk hennar á öllum þessum sviðum og langaði sannarlega til að vita meira. Bókin Drífa Viðar sem Ástríki gefur út svalar þessum fróðleiksþorsta. Þar er fjallað um málaralist hennar, skáldverk, gagnrýni og stjórnmálaþátttöku. Bókin er í stóru broti og falleg, einkennist af mikilli virðingu við listakonuna. Hún er sprottin frá málþingi um listakonuna sem haldið var í mars 2020. Ég hugðist mæta á það á sínum tíma en guggnaði á því sakir pestarhræðslu.

Ég á skáldsöguna Fjalldalslilju (1967) og smásagnasafnið Dagar við vatnið (1971) enn ólesin en áramótaheitið er að bæta úr því eftir að hafa lesið áhugaverða úttekt Helgu Kress á þessum verkum. Forvitninni um málaralist er enn betur svalað í bókinni þar sem þar eru fjölmargar myndir hennar prentaðar og ég hef verið að skoða þau verk öll jólin. Best þekkti ég Drífu sem gagnrýnanda vegna þess að Auður Aðalsteinsdóttir fjallaði um þá hlið hennar í Andvara 2020 sem ég ritstýrði raunar. Enginn vafi er á að málþingið 2020, sú grein og ekki síst þetta veglega rit marka upphaf að endurmati á Drífu Viðar og færa hana núlifandi og ekki síður komandi kynslóðum sem ella hefðu ef til vill misst af henni. Sem betur fer er þögn um mikilhæfa listamenn stundum rofin og það er gert hér á eftirtektarverðan hátt.

Previous
Previous

Skassið ótamið

Next
Next

Feimulaus fjallgarpur