Alþýðlegasta stórstjarnan
Það tók heiminn tíma að uppgötva snilligáfu Dolly Parton. Á bernskuárum mínum var hún einkum umrædd sem bosmamikil kántrísöngkona með fatastíl sem minnti næstum á portkonu og ekki var hún endilega tekin alvarlega sem lagahöfundur eða hljóðfæraleikari. Þetta var vitaskuld algerlega menningarlega skilyrt. Lítið var rætt um gáfur og hæfileika kvenna á þessum tíma og kántrítónlist þótti ekki merkileg meðal menningarvita. Fjörutíu árum síðar var Dolly komin í guðatölu hjá flestöllum og ekki síst menningarvitum sem sóttust margir sérstaklega eftir Moderna-bóluefninu sem Dolly Parton hafði styrkt vorið 2021. Hvað gerðist eiginlega? Dolly sjálf breyttist ekki neitt en menningin varð ívið víðsýnni. Kannski skipti líka máli að æ meiri umræða varð um góðgerðarstarf Dolly og hnyttni. Foreldrar mínir höfðu séð stórmyndina 9 til 5 í bíó en ég sá hana fyrst á vídeóöld. Strax þá fannst okkur Dolly Parton ekkert síðri leikkona en hinar og kannski skipti máli að kvikmyndin sjálf dró athygli að algengum fordómum um konur. Í einu besta atriði myndarinnar láta konurnar þrjár sig dreyma um hvernig þær gætu náð hefndum á karlrembusvíninu Franklin og í því atriði er Dolly ekki beinlinis persónan Doralee lengur heldur orðin að sjálfri Dolly Parton, besta hlutverki hennar áratugum saman.
Sams konar hlutverk fékk hún síðar í Stálblómunum (Steel Magnolias) sem ég horfði á ásamt mömmu sennilega í sjónvarpinu og okkur fannst Dolly aftur standast fyllilega samjöfnuð við allar hinar margverðlaunuðu leikkonurnar. Kannski var Dolly seinasta stórstjarnan, með svo yfirgengilegan persónuleika að hún gat aðeins leikið sjálfa sig en gerði það vel. Ég eins og við öll horfði á ófá myndbönd með Dolly eftir andlát hennar og hún var sannarlega afburða sviðslistamaður sem á áhorfendur með húð og hári í hvert sinn. Kannski vegna þess að hún er svo aðgengileg og vinaleg; persónan sem hún bjó til var frænka okkar allra og einmitt þess vegna urðu Kenny og Dolly fastagestir í karaókinu á A. Hansen og víðar. Þau voru kannski lummur en í því fólst galdurinn. Ævintýrið um Dolly Parton fjallar ekki síst um það hvernig konan sem gat samið tvo milljónahittara á einu kvöldi var samt svo alþýðleg að öllum heiminum fannst að lokum að hann þekkti hana persónulega. Það er enginn hægðarleikur að verða jafn rík og fræg og hæfileikarík og hún en halda samt í þessa hversdagslegu og jarðbundnu hlið.