Basil fursti blundar í mér

Nýlega var ég spurður um enskan frumtexta Basils fursta (sem ég heyrði vitaskuld fyrst getið hjá Spilverki þjóðanna) og gat þá upplýst viðkomandi um að Basil fursti væri reyndar alls ekki enskur þrátt fyrir að Lundúnaborg komi við sögu í ævintýrum hans heldur danskur og höfundurinn hét NIels Meyn. Raunar hafði ég gleymt prýðilegri grein Sindra Freyssonar um þessa alþýðuhetju en þar sem fáir lesa gömul tímaritshefti skaðar varla að rifja sögu Basils upp á ný. Niels Meyn (1891–1957) var upphaflega þýðandi en eftir að hann náði tökunum á hasarforminu sendi hann frá sér um 300 sögur. Meyn er auðvitað ekki mjög þekktur undir eigin nafni þar sem hann notaði höfundanöfn mikið, Charles Bristol mest en líka Peter Anker, Richard Ørn, Harold Chester og Jan Dorph.

Meyn samdi hasarbókmenntir á þeim dögum þar sem þær voru fyrirlitnar og hann naut því aldrei minnsta álits sem höfundur þótt hann næði vissulega til margra. Raunar var hann svo frjór að hann seldi öðrum höfundum hugmyndir af sögum. Fyrir utan Basil fursta var Kingsley lávarður þekktasta hetja hans en Meyn skrifaði líka um danskar hetjur, m.a. Rasmussen stýrimann sem óneitanlega er forvitnileg hetja. Auk heldur sendi hann alþýðlegar greinar um vísindi og fræði í alls konar blöð, einkum um dýraríkið sem hann var áhugasamur um.

Barnabækur Meyn nutu aðeins meira náðar fyrir augum gagnrýnenda en þær voru þá dæmigerðar drengja- og stúlkubækur (þær síðarnefndu auðvitað samdar undir kvenmannsnöfnum) í anda tímans og einkum skar Meyn sig úr með því að vera óhræddur við fljúgandi furðuhluti og önnur fremur óhugnanleg efni af því tagi. Þar sem Meyn gerðist nasisti í seinni heimsstyrjöldinni urðu verk hans þögninni að bráð eftir stríð og það voru einkum Svíar sem héldu nafni hans á lofti, auk Íslendinga sem ekkert vissu um manninn — Spilverk þjóðanna voru auðvitað vinstrihippar og hefðu seint haldið nasista á lofti þó að þau hafi vissulega vitað að Morgan Kane væri norskur Sveinn. Núna löngu síðar finnur maður fyrir talsverðum nostalgískum áhuga og varð ég var við að sögur um Basil fursta eru ívið dýrari en bækur stórskálda frá sama tíma.

Next
Next

Skarpar smásögur Clarice