Pabbar vita sínu viti

Bandamanna saga er ekki alveg jafn gefandi í kennslu og Gísla saga en á þó ýmislegt sameiginlegt með henni, einkum þó skýr höfundareinkenni sem í tilviki þeirrar fyrrnefndu eru bein ræða og mikill kennslufræðilegur áhugi. Báðar eru sögurnar sennilega samdar á 14. öld og geta vart talist Íslendingasögur að formi nema að takmörkuðu leyti. Bandamanna saga er dæmisaga og þó að samskipti föður og sonar séu aðalatriði í sögunni er hún alls engin ættarsaga heldur snýst um eina tiltekna deilu og hvernig úr henni leysist. Ádeila er hún augljóslega og beinist gegn höfðingjastéttinni eins og vinsælt var hjá kommum þegar ég var að alast upp en núorðið líka hjá frjálslyndum borgaralegum (sem vilja fá cool-stig fyrir að elska ekki Trump heitinn). Oft kemur mér í hug sú pólitík Gamla sáttmálans að allt yfirvald á Íslandi skuli helst vera af hinum fornu höfðingjaættum þegar ég les Bandamannasögu.. Það hvarflar iðulega að mér að höfundur hennar hafi haft sínar skoðanir á þessari höfðingjapólitík.

Það er því kannski þversagnakennt að sagan tekur skýra afstöðu með eldri kynslóðinni. Þó að Oddur Ófeigsson sé mikill bisnesskarl og kaupsýslumaður reynist hann fremur fákunnandi í rammíslensku valdatafli og lagaklækjum en Ófeigur faðir hans — sem aldrei hefur sýnt honum neina rækt og Oddur hefur engin samskipti við — mætir á staðinn eins og Guð úr vélinni og bjargar öllu. Ekki er hægt að segja að fléttan sé undrasnjöll þótt flókin sé, heldur gengur hún út á að deila og drottna, sundra óvinunum og koma restinni í opna skjöldu með öllum hugsanlegum aðferðum. Ófeigur er stundum eins og íslensk hliðstæða hins ófeilna William Bilbo sem aðstoðaði Lincoln að koma á stjórnarskrárbanni við þrælahaldi með mútum, hótunum og margs konar siðleysu. Augljóslega hefur höfundur líka heyrt skammir Skarphéðins um höfðingja Íslands í Njálu og þær eru endurteknar, kannski ekki alveg jafn glæsilega enda erfitt að keppa við Njálu, en þar nær þó sagan hátindi sínum.

Aðalatriðið eru sem sagt þessi átök á alþingi en þau eru sprottin af ógæfu hins gervilega Óspaks sem vinnur það níðingsverk að drepa hinn góðgjarna Vála. En þegar valdabaráttan á þingi er hafin gleymast þeir Óspakur og Váli alveg og það kemur eiginlega á óvart þegar Óspakur finnst látinn í helli í sögulok líkt og skálkurinn Jói Indíáni í sögu Mark Twain um Stikilsberja-Finn og Tuma Sawyer. Ófeigur hins vegar er líka úr sögunni fyrir lok hennar og þarf að una við þau ein laun að sonur hans fór að lokum að hlusta á hann. Kannski er sá æðsti draumur ellinnar á öllum tímum, þ.e. að æskan hlusti á hana.

Previous
Previous

Bermúdaþríhyrningur og blóði drifin leikrit

Next
Next

Enginn sér við Unabomber