Enginn sér við Unabomber

Ef ungir drengir fara of snemma í háskóla og bregðast illa við kossaflensi gætu þeir að lokum orðið stórhættulegir prepparar og smáskammtahryðjuverkamenn líkt og hinn alræmdi Ted Kaczynski. Er þetta góð kenning? Það er margt sálfræðilega áhugavert í Netflixmyndinni Unabomber þar sem annars vegar er sagt frá leit lögreglukonu einnar að þessum þrautseiga sprengjugarpi árið 1995 og hins vegar Harvardárum hins kornunga tilvonandi sprengjumanns 35 árum fyrr þar sem hann tekur þátt í einni af þessum frægu sálfræðitilraunum sem Ameríkanar sérhæfðu sig í á eftirstríðsárunum og núna þykja allar afar ósiðlegar. Vandinn er kannski að aldrei var reynt að velja milli þessara sagna og ég hefði líklega haft meira gaman af mynd um söguhetjuna ungu ef hann hefði ekki verið Unabomber. Myndinni er leikstýrt af Dananum Janus Metz Pedersen sem er að sjálfsögðu að „sætte problemer under debat“ eins og nágrönnum okkar er lagið. Það er mikið talað um heimspeki, stjórnmál og annað álíka í þessari mynd — kvikmyndaformið er þó lítið skárra til þess arna en þjóðsögur og ævintýri. Það sem kvikmyndin kann er að sýna og það tekst stundum vel og stundum ekki.

Það er stundum erfitt fyrir kvikmyndaðar sannar sakamálasögur að keppa við haganlega gerðar heimildamyndir og leitin að sprengjumanninum verður aldrei neitt sérstaklega áleitin jafnvel þótt leikkonan Shailene Woodley úr kvikmyndunum mörgu sem voru eiginlega Hungurleikarnir en þó ekki reyni sitt besta. Á hinn bóginn nýtur Harvardhluti myndarinnar svipbrigðaleiks hins unga Jacob Tremblay í hlutverki Kaczynski. Besti hluti myndarinnar er þegar hann hefur myndað tengsl við sálfræðiprófessorana Murray og Morgan en reynist þeim ekkert nema tilraunadýr í grófri heilaþvottartilraun sem snýst um að brjóta niður þá sem taka þátt í henni. Murray er leikinn af Russell Crowe sem hefur mikinn sjarma og í myndinni fer táningurinn sem varð sprengjumaður að ímynda sér að þeir hafi náð góðum tengslum en kemst síðan að því að prófessorinn er áhugalaus um hugmyndir hans og virðist það upphafið að ævilangri útlegð hans með tilheyrandi sprengingum. Ekki veit ég til þess að þetta orsakasamhengi eigi sér neina stoð í gögnum enda virðist það vandséð að þátttaka í svona tilraun ætti að hafa slík áhrif á táninginn.

Kaczynski fór sannarlega ungur í Harvard og tók þátt í þessari tilraun og löngu seinna varð hann hryðjuverkamaður. Þetta er allt látið hefjast í myndinni þegar hann er trylltur unglingur og verður smám saman leikinn í að láta ekki brjóta sig niður. Þar með hefur hann skorað rannsóknina á hólm og einvígi hefst milli hans og Murray sem er harðákveðinn í að hafa betur í viðureign sinni við unglinginn með brellum og lygum. Þó að það einvígi sé algerlega sviðsett og á köflum ótrúverðugt, þá er það áhugaverðara en löggur í skógi að elta uppi hinn miðaldra og afar úfna Kaczynski. Niðurstaðan er sú að enginn hefur betur en Unabomber fyrir utan málfræðilega þenkjandi lögreglukonuna Miller sem auðvitað er tilbúningur eins og maður vissi nokkurn veginn frá byrjun.

Grundvallarírónían í öllu þessu sakamáli kemur ekkert við sögu og hún er sú að þó að Kaczynski hafi óneitanlega verið sérlundaður og andfélagslegur þá hafði hann samt í grundvallaratriðum rétt fyrir sér um iðnbyltinguna sem sannarlega hefur gert sitt fyrir velferð mannkynsins seinustu 200 árin en með ófyrirséðum og sennilega katastrófískum afleiðingum. Enda eru netverjar enn að lesa hið risavaxna manifestó dólgsins og þykir það furðu sannfærandi. En um það fjallar Netflixmyndin ekkert; hún er fyrst og fremst tækifæri fyrir hinn unga Tremblay að sýna að hann er enn efnilegur leikari.

Previous
Previous

Bermúdaþríhyrningur og blóði drifin leikrit

Next
Next

Magritte eða Maigret?