Bermúdaþríhyrningur og blóði drifin leikrit

Sumarið 1985 flutti útvarpið leikritið Raddir sem drepa þar sem Bermúdaþríhyrningurinn illræmdi kom við sögu en fátt óttuðust forvitin börn af minni kynslóð meira en þann ægilega stað. Aðalpersóna leikritsins var teiknimyndasöguhöfundurinn Alex leikinn af Jóhanni Sigurðssyni kornungum en hann teiknaði sögurnar um hetjuna NickNemo. Mamma hans kom líka við sögu, leikin af Þóru Friðriksdóttur sem í æsku hafði leikið í Ævintýradalnum og öðrum leikritum eftir sögum Enid Blyton en þau voru einmitt endurflutt þegar ég var ellefu ára og auðvitað afar spenntur. Raddirnar voru afar hroðalegar og nú löngu síðar dettur mér í hug að effektinn hafi fylgt leikritinu frá Danmörku en þar hafði það verið frumflutt árið 1979 með Erik Wedersøe og Bodil Kjer í aðalhlutverkum. Sennilega kannast enginn við þau lengur en mér er fokksama, allt getur breyst og það er ekki eins og margir kannist við þessa síðu mína heldur.

Það er visst afrek að gera fólk hrætt við dularfull hljóð og raddir en það tókst útvarpinu ágæta vel að gera á þeim dögum; ég man til dæmis eftir leikriti um konu sem heyrði sér brugguð launráð þegar símalínum sló saman sem mig grunar að hafi verið eftir gömlu leikriti Lucille Fletcher (1912-2000). Lengi hugsaði ég þannig með hryllingi til raddanna sem drepa og það var m.a. af góðum minningum um þá adrenalínfíkn að ég kynnti frænda minn á barnsaldri síðar fyrir herra Barlow úr Salem’s Lot. Þar sem ég hef fylgst talsvert með ungu fólki ræða kvikmyndir undanfarið finn ég að mörgum líkar vel við effekta sem eru eldri en tölvutæknin og margt sem var um tíma talið úrelt er kannski sígilt.

Alex sjálfur er orðinn hálfgerður flóttamaður að lokum en síðan kemur vitaskuld í ljós að útvarpsbylgjusérfræðingarnir sem hann hafði leitað til um hjálp reynast hafa óhreint mjöl í pokahorninu og mig minnir að raddirnar hafi að lokum sprengt hljóðhimnu hins seka en Alex sloppið. Áður höfðu persónur þáttanna týnt tölunni hratt eins og sjá má hér að ofan. Svona voru spennuþættir 9. áratugarins gjarnan, t.d. sá sem öll fjölskyldan sat límd við sumarið 1983 og fjallaði um þrifalega tölvuglögga embættismanninn Henry Jay sem var að upplýsa alls konar samsæri en þar voru 2-3 drepnir í hverjum þætti. Henry Jay var leikinn af Richard Griffiths sem síðar hlaut frægð fyrir Harry Potter myndum en í mínum huga er hann og verður Henry Jay.

Raddir sem drepa var eftir höfundinn Poul-Henrik Trampe (1944–1982) sem ég kannaðist við úr dönsku blöðunum hennar mömmu og var afar hárprúður eins og sjá má. Hann hvarf af ferju á dularfullan hátt, aðeins 38 ára gamall, en sennilega telur enginn það vera morð úr því að ekki er búið að gera tugi hlaðvarpa um andlát hans. Nafn hans gerir Íslendinga eðlilega forvitna (ég veit ekki hvort hann er kominn af greifanum alræmda sem Jón mótmælti) en þess vegna þekkti ég þessi myrku örlög hans þegar ég heyrði leikritið um raddirnar úr Bermúdaþríhyrningnum á sínum tíma og gerði þær enn dularfullri og óhugnanlegri.

Next
Next

Magritte eða Maigret?