Magritte eða Maigret?

Ef marka má netið er ég kannski sá eini sem hefur tekið eftir því að lögregluforinginn Thistlethwaite ekur um á bíl með bílnúmer sem minnir á enska orðið „Toilet“ í 4. þætti ensk-belgíska sjónvarpsþáttarins This is Not a Murder Mystery sem sýndur var í Sjónvarpinu nýverið og er „hefðbundið“ sveitasetursmorð — reyndar ekki alveg jafn algengt sögusvið á 3. og 4. áratug seinustu aldar og margir telja — þar sett á svið meðal frægra súrrealista miðrar 20. aldar á borð við Magritte, Man Ray og Salvador Dali. En kannski eru þessu þættir of hlaðnir af smáatriðum til að hægt sé að ræða þau öll og varla er hægt að ræða þá á raunsæisforsendum. Þess vegna væri fánýtt að kvarta yfir því að hluti sögulegra persóna sem er myrtur í þættinum hafi alls ekki hlotið þau örlög eða yfir að svört lögreglukona vinni að lausn glæpsins eða að James lávarður sem er gestgjafi listamannanna reynist vera kvenkyns þótt aldrei sé á það minnst eða að leikarinn sem leikur René Magritte (hinn belgíski Pierre Gervais sem við eigum örugglega eftir að sjá meira af) sé talsvert myndarlegri en Magritte sjálfur var. Hugmyndin um morð á listrænum grunni krefst þess að allt raunsæisfjas sé látið lönd og leið.

Myndatakan í þáttunum er ekki síður sláandi en list framúrstefnumálara frá fyrri hluta 20. aldar og í hverjum þætti eru margar senur sem líkjast málverkum, ekki þó endilega súrrealískum málverkum en ég vek athygli á gólfteppinu hér að ofan. Það er stöðugt eitthvað að gerast aftan við leikarana og auðvelt að gleyma fléttunni og horfa á húsmunina. Lengi beið ég eftir pípu eða ekkipípu Magritte en veit ekki hvort það var þess virði. Það er samt áhugaverður metnaður í ýmsum nýlegum sögulegum sjónvarpsþáttum sem eru veisla fyrir augað fremur en neitt annað og kannski eðlilegt ef málarar og aðrir myndlistarmenn eru aðalpersónurnar. En vitanlega er slík myndauðgi áberandi í ýmissi framúrstefnulist frá fyrri hluta 20. aldar. Ég er ekki fróður um klæðnað þess tíma en allt skrautið á settinu er nógu trúverðugt fyrir mig og sannarlega augnayndi.

Ekki get ég sagt að mér þyki hinar sögulegu persónur allar sannfærandi eða einu sinni áhugaverðar. Við svipaðan vanda glímdi sjónvarpsþátturinn Transatlantic sem sýndur var árið 2023 og snerist um listamenn fyrir 80 árum en náði ekki mörgu eftirminnilegu úr þeim. Ég er ekki fjarri því að ég hefði haft sama áhuga ef persónurnar hefðu ekki verið frægir myndlistarmenn aldarinnar sem leið. Ég hreifst þannig ekkert sérstaklega að hjúskaparerjum Salvador Dali og Gölu hans. Aftur á móti fer hinn nú aldraði leikari Stephen Tompkinson með hlutverk lögreglumannsins Thistlethwaite og hefur mikla nærveru og það sem kynslóð mömmu og pabba hefði kallað „pondus“. Ég hafði óneitanlega mest gaman af þættinum meðan hann var í mynd og mikil mistök voru að stúta honum fyrir lokin. Næstur á eftir er sjálfur Gervais en aðallega útlitsins vegna.

Sjálft morðmálið er ekki heldur neitt sérstaklega áhugavert eða sannfærandi og lausnin klisja sem nær engum húmorískum hæðum. Það má líka segja að hátindur þáttarins er ekki lausn málsins heldur myndlistarviðburðurinn í lokin. Ef þættirnir hefðu gengið enn lengra eða jafnvel alla leið út í listasögusatíru hefði ég kannski orðið ánægðari í lokin. Listaumboðsmaðurinn sem segist geta selt allt hleypti þannig talsverðu lífi í tuskið en ég varð samt ekki var við neina stefnu eða hugmynd. Gengur hugmyndin um að endurgera listaverk sem morð upp og hvað er eiginlega verið að segja með henni? Ég get ekki sagt að ég skilji það til fulls en alveg fram að lokum vonaðist ég eftir eins konar listasögulegum punkti. Kannski skil ég súrrealismann ekki nógu vel en ég fann ekkert nýstárlegt um hann hjá Belgunum.

Eftir að við höfum horft á Magritte, Dali og Man Ray um skeið birtast sjálfir Freud og Picasso í lokin en án þess að breyta miklu og hugmyndin kannski einkum að hlaða sem mestu í einn þátt. Ég veit ekki alveg hvað mér finnst um þetta allt en það var þó ekki leiðinlegt að horfa á þáttinn, raunar aðallega vegna þess að bakgrunnurinn er fullur af list og áhugaverðum húsmunum.

Previous
Previous

Bermúdaþríhyrningur og blóði drifin leikrit

Next
Next

Icelandic Gothic