Í hrútsmerkinu

Seint verður hægt að gera öllum afmælisbörnum dagsins fullnægjandi skil en eitt er Heinrich Mann (1871–1950) sem einn kennari minn trúði mér eitt sinn fyrir að hún hefði alltaf kunnað betur að meta en bróðurinn Thomas. Ég hef aldrei lesið Heinrich en er afar hrifinn af Thomas upp á sitt besta. Þeir bræður flúðu Þýskaland árið 1933 og Heinrich fór þá til Frakklands þar sem hann bjó óhultur í sjö ár en árið 1940 luktist sú Paradís, hann flúði suður og var í hópi þeirra listamanna og gáfumanna sem hinn knái Varian Fry bjargaði frá nasistum en um það fjallaði þáttaröðin Transatlantic sem við frændur horfðum á saman vorið 2023 í Budapest. Heinrich og kona hans Nelly fóru yfir fjöllin ásamt bróðursyninum Golo Mann og Werfelhjónunum Franz og Ölmu og náðu til Portúgals í september 1940.

Heinrich Mann eyddi seinasta áratug ævi sinnar í Kaliforníu en Bandaríkjamenn mátu hann einskis enda var hann sósíalískur höfundur. Thomas hélt honum uppi og kona hans Nelly framdi sjálfsmorð árið 1944. Samband þeirra bræðra flæktist eftir að Thomas fékk Nóbelsverðlaunin enda voru þeir bræður að mörgu leyti andstæður. Thomas Mann vildi gjarnan vera borgaralegur en Heinrich var sósíalisti og frægur fyrir dálæti sitt á lágstéttarkonum á meðan smekkur Thomas lá fremur til kornungra manna. Thomas studdi þó bróður sinn og hampaði sérstaklega skáldsögum hans um Hinrik 4. Frakkakonung sem Heinrich samdi í útlegðinni í Frakklandi.

Heinrich Mann hefur hlotið nokkra frægð fyrir skáldsögu sína Professor Unrat (1905) sem Josef von Sternberg gerði að kvikmyndinni Der blaue Engel (1930) með Marlene Dietrich í aðalhlutverki sem dansarinn Lola Lola en allir kannast við söng hennar „Ich bin die fesche Lola“ og raunar er „Ich bin von Kopf bis Fuß auf Liebe eingestellt" líka úr þessari kvikmynd eftir sögu Heinrich Mann. Sagan er dæmigerð fyrir Mann sem var einn fjölmargra karlkyns sósíalista og kommúnista 20. aldar sem var upptekinn af gleðikonum og öðrum næturdrottningum sem síðar urðu óvinsælar af femínistum af minni kynslóð en eru nú sennilega aftur komnar í tísku sem kynlífsverkamenn.

Árið 1911 fór Heinrich Mann með Thomas bróður sínum og konu hans til Feneyja og fylgdist með Thomas verða bergnuminn af pólska unglingnum Władysław Moes sem kallaður var Adzio (mynd að neðan) en varð að Tadzio í hinni mögnuðu sögu Dauðinn í Feneyjum. Moes sagði í viðtali við þýska tímaritið Twen árið 1965 að Mann hefði lýst fötum hans og hegðun nákvæmlega í skáldsögu sinni og var býsna stoltur af því að vera músa listamannsins (þó að aðrir hafi dregið það í efa). Ekki er vitað hvað Heinrich Mann fékk úr þessu fríi. Hann andaðist árið 1950, einmana og yfirgefinn, en var að áforma að flytja til Austur-Þýskalands þar sem kommarnir þar höfðu mikið álit á honum og ætluðu að gera hann að forseta listaakademíunnar. Aska hans var flutt austur og grafin í heiðursgrafreit.

Next
Next

Tröll tekur táning