Þessi síða snýst um bókmenntir og listir en ekki um pólitískar spurningar á borð við hvers vegna ungt fólk kýs Miðflokkinn. Á hinn bóginn er hægt að fá innsýn í heiminn með lestri bókmennta og jafnvel hlustun á hlaðvörp um bækur en þau eru ófá í Bandaríkjunum þó að á Íslandi séu þau ekki nógu mörg (fyrir utan auðvitað þetta!). Eins og margt fólk í nútímanum er ég ekki jafn duglegur að lesa og ég var en hef hneigst að hlaðvörpum og smám saman hef ég fundið alls konar umfjöllun um bókmenntir og listir þó að raunar sé sá vandi við hlaðvörpin að yfirleitt eru þau betri eftir því sem þau snúast meira um afþreyingu og minna um Nóbelsverðlaunabókmenntir. Eitt af því sem auðvelt er að finna gott efni um er vitaskuld morðið í Dallas 22. nóvember 1963 en seinustu mánuði hef ég uppgötvað að Oliver Stone er ekki lengur í tísku hjá bandarískum vinstrimönnum og þau hlaðvörp sem ég hlusta á (sem öll eru heldur til vinstri við meginstraum stjórnmálanna þar í landi) eru almennt vantrúuð á samsæriskenningar um morðið og trúa jafnvel flest á „undrakúluna“ svokölluðu sem allir vinstrimenn hæddust að fyrir 50-60 árum. Það hefur hvarflað að mér að þetta tengist almennum pólskiptum þar sem vinstrimálefni hafa komist svo rækilega á dagskrá að núna er hægt að vera uppreisnargjarn hægrimaður og meðal annars hafa hægrimenn tekið yfir samsæriskenningar á meðan það er orðið í tísku vinstramegin að hlæja að þeim. Sennilega er einkum til marks um háan aldur minn að ég sé hissa á þessu.
Þetta er auðvitað allt í nánu samhengi við velgengni appelsínugula fyrirbærisins sem sannarlega er dugmikill að standa vörð um peningaöflin líkt og flokkur hans hefur alltaf gert en á allt öðrum forsendum en áður var gert, með þeim afleiðingum að stjórnarandstæðingar þar í landi eru orðnir fullir af nostalgíu, sumir jafnvel eftir gósenárum Reagans og Bush. Persónulega hef ég áhyggjur af því að. láta andstæðinginn stjórna sínum skoðunum og frekar undrandi á vinstrafólki sem telur það skyldu sína að standa vörð um ýmis hægri sjónarmið eingöngu vegna þess að Trump er á annarri línu og eins vinstrimönnum sem kalla hann Rússadindil. Auðvitað man ég þá tíð að fólk var ranglega álitið til vinstri af þeirri einni ástæðu að það var ekki á alveg sömu línu og Davíð Oddsson í einhverju máli og enn rekst maður á fólk sem er fast í því fari. Auðvitað eru hlaðvarpararnir sem ég hlusta á greint fólk því að annars væri ég ekki að hlusta og fæstir vilja taka afstöðu eingöngu til að vera á móti Trump. Hlaðvörpin sem ég hlusta á hafa þannig afar greindarleg rök til að trúa ekki á að aðrir en Oswald hafi verið með í Kennedymorðinu en samt sækir sú hugsun að manni að það sé eitthvað í tíðarandanum sem gerir vinstrimenn núna andsnúna samsæriskenningum yfirleitt eftir að hægrimenn fóru að sérhæfa sig í þeim.
Eins er það staðreynd að JIm Garrison saksóknari var alger vitleysingur, sakamál hans eftir Kennedymorðið hið mesta þrugl og jafnvel sú útgáfa sem Oliver Stone bjó til er frekar hláleg þótt kvikmyndin sé samt frábær sem slík. Var ég hallur undir hana árið 1991? Það kann að vera þó að núna finnist mér hún hræðilega ósannfærandi. Er það vegna breytts tíðaranda eða minnar eigin menntunar, reynslu og ævistarfs í gagnrýnum lestri? Ég er stundum ekki alveg viss. Ég hef sannarlega aldrei deilt aðdáun Stone á Kennedy heitnum og ekki aðeins vegna MeToo-hreyfingarinnar. Eins er ég eðlilega ekki með Víetnamstríðið á heilanum sem Stone jafn eðlilega er mjög upptekinn af. En svo er ég líka orðinn ansi þreyttur á gerviróttækni þar sem hin og þessi fyrirbæri, jafnvel ESB, Inga Sæland og MIðflokkurinn, eru seld sem eins konar bylting gegn vondu ríku fólki með orðræðu sem minnir oft á vel skrifaðan vaðalinn í Kevin Costner að leika Garrison.