Ríki risanna

Nýlega barst mér í hendur látlaus falleg bók sem er afmælisrit til Guðrúnar Guðsteinsdóttur prófessors. Þar er á forsíðu 16. aldar Ameríkukort þar sem meðal annars má finna „Regio Gigantum“ í sunnanverðri Ameríku. Brú milli heima er viðeigandi heiti á greinasafnið þar sem Guðrún stundaði rannsóknir á amerískum bókmenntum enda menntuð í Kanada og eins finnst mér eitthvað fallegt við vísunina í ríki risanna í ljósi þess að í Ameríku eru allnokkur risavaxin lönd. Svo má líka velti fyrir sér andlegum risum eins og iðulega er fengist við í heimsins háskólum. En umfjöllunarefnin í þessu riti eru raunar afar fjölbreytt og sum frekar smá enda greinarnar stuttar af ásettu ráði, en á því fer bara vel. Greinarhöfundar eru auk ritstjóranna Birnu Bjarnadóttur og Ingibjargar Aðalsteinsdóttur Nikkita Hamar Patterson, Jessica Murphy, Gregory Alan Phipps, Hólmfríður Garðarsdóttir, Guðrún Kristinsdóttir, Birna Arnbjörnsdóttir, Auður Hauksdóttir og Ásdís Rósa Magnúsdóttir.

Ein greinin fjallar um Frakkann Féliz Fénéon sem sérhæfði sig í svokölluðum þriggja lína fréttum og er kannski lýsandi fyrir þetta fallega smáa greinasafn þar sem allt er nett og stutt en umfjöllunarefnið er stórt, brúin milli heimanna. Mér finnst ritinu takast það sem kortið á forsíðunni veit á, þó að formið sé stutt er efnið risavaxið.

Next
Next

Þung byrði krúnunnar